Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves ætti að vera lesendum Kvennablaðsins vel kunn enda ástsælasta tónlistarhátíð Íslendinga í seinni tíð. Kvennablaðið lét sig að sjálfsögðu ekki vanta og lagði sig sérstaklega fram við að sjá ungar og upprennandi íslenskar tónlistarkonur á nýafstaðinni hátíðinni. Úr nógu var að velja og er þessum pistli því einungis ætlað að fjalla brot af því besta enda var ómögulegt að fara og sjá allar þær frambærilegu listakonur sem hátíðin hafði upp á að bjóða.
Mr. Silla
Mr. Silla eða Sigurlaug Gísladóttir er enginn nýliði á Airwaves en hún hefur komið fram með fjölda hljómsveita á hátíðinni nokkurn veginn slitulaust frá árinu 2005. Þetta árið spilaði Mr. Silla tónlist af verðandi sólóplötu sinni við góðar viðtökur enda um einstaklega heillandi og skemmtilega tónlist að ræða. Platan, sem væntanleg er á næsta ári inniheldur rafpopp af fínustu sort sem skartar fögrum elektrónískum tónum í bland við magnaða rödd Sillu. Við mælum með að lesendur Kvennablaðsins fylgist grannt með Mr. Silla á næstu misserum og mæti á tónleika hjá henni til þess að fá forsmekkinn af plötunni verðandi.
Frekari upplýsingar um Mr. Silla má nálgast í viðtali hennar við Kvennablaðið og á Facebook síðu söngkonunnar.
Kælan Mikla
Kælan Mikla er kraftmikil pönkljóðasveit Laufey Soffíu Þórsdóttur, Margrétar Rósu Dóru- Harrysdóttur og Sólveigar Matthildar Kristjánsdóttur. Tónlist sveitarinnar er listileg blanda drungalegra pönktóna og melódískra ljóðlína kórónuð afbragðs öskrum Margrétar Rósu. Stúlkurnar eru ungar að árum eða rétt um tvítugt og sviðsframkoman er eftir því lífleg og grípandi. Kælan mikla stígur næst á svið þann 28. nóvember á Húrra ásamt Ghostdigital og Pink Street Boys sem er alls ekki amaleg
Fylgist með Kælunni miklu á Facebook hér.
Fleiri lög sveitarinnar má nálgast hér.
Dísa
Dísa er glænýr tónsmiður sem bauð upp á einlæga og áhrifamikla tónleika í Hörpunni á Airwaves. Tónarnir voru kröftugir en angurværir í senn og Dísa heillaði tónleikagesti upp úr skónum með auðmjúkri og fallegri sviðsframkomu. Kvennablaðið mælir hiklaust með Dísu sem gefur út tónlistina sína í samstarfi við danska plötu-útgefandan Tigerspring Records en hún er búsett í Kaupmannahöfn. Hlekki á magnaða tóna Dísu má nálgast hér:
Alvia Islandia
Alvia Islandia er 21 árs hiphopsöngvasmiður sem fyrst lenti á radar Kvennablaðsins a Secret Solstice hátíðinni í sumar með ferskum og seiðandi rímum. Hún var ekkert síðri á Húrra síðastliðin laugardag sem gaf af sér þétt og melódískt mantrarapp söngkonunar. Fyrstu lög nýrrar plötu Alvia Islandia eru væntanleg næsta sumar. Þangað til má nálgast tónsmíðina hér en við mælum sérstaklega með laginu Stelpur sem unnið var með Unni Karls.
Dreamwife
Síðastar en ekki sístar af ungum og upprennandi tónlistarstjörnum Airwaves hátíðarinnar voru stúlkurnar í nýstofnaða bandinu Dreamwife sem spiluðu víða á off venue sviðum hátíðarinnar. Hljómsveitin samanstendur af Bretunum Alice og Bellu og Íslendingnum Rakel, en þær kynntust í listaháskólanum í Brighton. Tónlistina mætti kalla afslappað og grípandi indí rokk með góðum takti og frábærum vókalista sem er tilvalið til hlustunar fyrir sunnudagsdund eða afslappaðri gestasamkomur. Fólk sem skokkar ætti að fíla bandið líka, lögin vekja einhvern vegin löngun til þess að skokka þó svo að höfundur hafi aldrei viljað leggja stund á þá iðju.
Þetta á allavega við um lagið Believe:
Allt um Dreamwife má svo finna á heimasíðu hljómsveitarinnar hér.