Ragnar Þór Pétursson skrifar:
Aðstoðarmaður Innanríkisráðherra hélt eflaust framanaf að útilokað væri að sakfella hann ef hann bara héldi sig við þann framburð að þykjast ekkert vita. Honum nægði bara að ljúga nógu ákaft og einlæglega.
Hann gefur í skyn að inngróið samviskubit hafi hrint honum til að játa loks. Við vitum nú að rétt áður en hann ákvað að gangast við brotinu styrktist mjög sönnunarbyrðin gegn honum. Hann vill þó að við trúum því að hann hafi verið farinn að gæla við að segja frá áður en að því kom.
Ég trúi því alveg. Ég held að hann hafi haft mjög eindregnar ástæður til þess að forðast réttarhöld.
Ein spurning sem hann (og fleiri) vildu ekki þurfa að svara lýtur að algjöru grundvallaratriði í málinu. Ég hef raunar bent á það áður. Og þetta er enn grundvallaratriði – þótt málinu sé lokið gagnvart aðstoðarmanninum.
Grundvallaratriðið er þetta hér:
Þá er rétt að benda á að í hælismáli stúlkunnar sem á von á barni, hugsanlega með TO er því borið við af hennar hálfu að hún sé mansalsfórnarlamb. Ekki liggur ljóst fyrir hver er barnsfaðir hennar, en rannsóknargögn gefa til kynna að hún sé beitt þrýstingi um að segja að TO sé faðirinn þó svo að hann eigi nú í sambandi við íslenska stúlku.
Þetta er niðurlag hins lekna skjals. Niðurlag sem margir virðast vilja afgreiða sem einfaldan róg. En þetta er ekki einfaldur rógur – og þetta sannar að jafnvel nú, þegar spilin eru komin á borðið, segir aðstoðarmaðurinn ekki satt frá.
Hann sagði nefnilega í Kastljósinu að hann hefði ekki einu sinni vitað af tilvist Tony Omos fyrr en hann, eins og aðrir, hefði fengið þetta skjal sem hann síðan, örfáum klukkustundum seinna, lak án þess að ræða málið við neinn.
Það gengur augljóslega ekki upp.
Af þeirri ástæðu einni að það sem hann saumaði neðan á skjalið byggði á þekkingu á málinu sem virðist vera komin innan úr lögreglurannsókninni sjálfri. Mér skilst að lögreglan á Suðurnesjum hafi rannsakað málið. Mér skilst líka að Hanna Birna hafi stundað það að hitta lögreglustjóra til skrafs og ráðagerða. Sá sem þarf að svara fyrir þetta slúður er því fyrrum lögreglustjórinn á Suðurnesjum.
Málið vandast vegna þess að sá lögreglustjóri er nú yfir lögregluembættinu sem rannsakar brotið gagnvart Tony Omos ef það verður skoðað eitthvað nánar. Þangað færði Hanna Birna hann sjálf.
Sum sé, Gísli vitnar í umræðu um Tony Omos innan úr kerfinu og slúður sem borið var í hann (og líklega Hönnu Birnu líka). Það að setja þetta slúður neðst á blaðið sýnir ásetning lekans svo ekki verður um villst. Hugsanlega er uppspretta slúðursins hjá lögreglustjóranum sem ætti, ef allt væri eðlilegt, að rannsaka uppsprettu þessu. Lögreglustjóranum sem hugsanlega er búinn að vita allan tímann hverjir fengu aðgang að þessu slúðri – en er búinn að þegja allan tímann sem rannsóknin hefur farið fram.
Það fyrsta sem ég hefði gert ef ég væri saksóknari væri að kalla lögreglustjórann sem fór með málefni Evelyn í vitnastúku og spyrja hvort hann hefði rætt þær grunsemdir sem aðstoðarmaðurinn saumaði neðan á skjalið við einhvern. Og ég hefði spurt þann grunaða hvaðan hann hefði þessar upplýsingar.
Mig grunar að margir hefðu viljað forðast svar við þeirri spurningu.
Pistill birtur fyrst á bloggi Ragnars þórs Péturssonar sem má finna hér.