Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

„Takk fyrir að reyna að segja sannleikann, Reynir“

$
0
0

Ef einhver heldur að það verkefni blaðamanns að koma til okkar hinna óbjöguðum upplýsingum um atburði og strauma í þjóðfélaginu okkar sé auðvelt og einfalt þá mæli ég með að viðkomandi lesi nýútkomna bók, AFHJÚPUN, eftir Reyni Traustason fréttamann, ritstjóra, rithöfund, fjallgöngugarp og harðjaxl um líf hans og störf í íslenskum fjölmiðlaheimi.

reynir

AFHJÚPUN er bók sem fær mann til að velta því fyrir sér hvers konar hákarlar það séu eiginlega og hvaða hagsmunir liggi að baki og hvílíka hörku þurfi til að svínbeygja harðjaxl eins og Reyni og hrekja hann úr starfi…

Miðað við hversu gruggugum vötnum þarna er lýst, mikilli mengun og þeim risastóru lortum sem þar fljóta ofan á er greinilega eins gott að treysta varlega þeim upplýsingum sem fjölmiðlar bjóða upp á – nema hugsanlega sé óhætt að fara eftir piparkökuuppskriftum um þetta leyti árs.

Mér finnst sorglegt að AFHJÚPUN skuli vera réttnefni á bók sem lýsir vinnuumhverfi og starfi mikillar hamhleypu með brennandi áhuga á fréttamennsku. Takk fyrir að reyna að segja sannleikann, Reynir, þótt það virðist ekki beinlínis vera í tísku núna.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283