Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Mennt er máttur en silikonið er máttugra!

$
0
0

Sigrún Gísladóttir Bates skrifar:

Hei ! Strákar ! Fundur ! … þeir söfnuðust saman inni í fundarherbergi en frammi horfðu konurnar hver á aðra með spurningu í augum. Þær sögðu ekkert en undruðu sig ekki á því að strákarnir væru að fundast, það var ekkert nýtt. Þeir skipulögðu svona stráka hitt og þetta eins og laxveiði, golfferðir og þar fram eftir götunum. Höfðu þær ekki fengið að nota kaffistofuna undir Tupperware-kynningu og var ekki kynning á snyrtivörum um daginn þar sem allar sem mættu með vinkonu fengu litla tösku með sýnishornum í gjöf og klút -sem var reyndar svo lítill þegar til kom að hann reyndist eingöngu duga sem snýtiklútur en þetta var samt flott.

Á fundinum hjá strákunum var einn dagskrárliður: Allar konur yfir 35 ára burt úr fyrirtækinu „no matter what“! Sumir hváðu? Ha, hvað meinar þú? Spurði einn.

Skipanir af ofan strákar mínir, skipanir af ofan! Og henda öllum umsóknum og CV frá eldri en 30 ára! Skipanir af ofan!

Þessar skipanir fóru sem eldur um sinu í fjöldamörg fyrirtæki, þessir ósiðir voru teknir upp víða og eru enn við lýði.

Vá! Þið haldið að ég sé að segja frá næsta þætti í Mad Man? Nei, þetta er ískaldur raunveruleiki á Íslandi í dag og fundurinn var haldinn fyrir hrun. Konurnar voru látnar fara og hafa ekki fengið að snúa aftur. Sumar þeirra eru löngu búnar með atvinnuleysisbótatímann sinn og komnar upp á borg og bæ en aðrar voru heppnar og fengu vinnu gegnum Vinnumálastofnun, þar sem bæturnar þeirra runnu inn í launin en sökum þess að þetta eru gríðarlega klárar konur sáu viðkomandi fyrirtæki að hæfileikar þeirru gætu komið að gagni og réðu þær í vinnu.

Auðvitað voru ungu stelpurnar sem voru ráðnar í kjölfarið á fundinum flestar vel menntaðar enda menntun hátt metin hér á landi og við getum verið stolt af dætrum þessa lands sem gera sér fulla grein fyrir að „mennt er máttur“. Húrra fyrir þeim en þær munu eldast og brjóstin á þeim síga svo ég hvet þær til að lesa áfram.

Magn silikons í brjóstum er líka máttur! Þar kem ég að kjarnanum í þessari grein. Ég settist inn á skrifstofu hjá vini mínum fyrir ári síðan og dæsti. Hvaða, hvaða sagði hann, fáðu þér núna kaffi og andaðu með nefinu. Ég var dálítið pirruð, skal viðurkenna það. Eftir nokkrar öndunaræfingar kom gusan. Hvað er eiginlega í gangi á þessu landi? Spurði ég og átti þá reyndar frekar við höfuðborgina Reykjavík en landsbyggðina. Nú? Hvað nú? Spurði þessi ágæti vinur minn; þetta gat verið svo margt hjá mér. Pólitíkin?- því ég hafði tekið þátt í kosningabaráttu til Alþingis.

Breytingaskeiðið? Jú, ég var rétt skriðin yfir fimmtugt, og verða konur ekki hálf brjálaðar þá?
Krakkarnir? Kannski, en þau eru öll flutt að heiman.

Ég horfði í augun á vini mínum og spurði: Af hverju í andskotanum fæ ég ekki vinnu? Ég er ekki einu sinni kölluð í viðtal. Ég er með flott CV að mínu mati, er að ljúka BA-ritgerð frá hugvísindadeild HÍ, hef starfað sem fararstjóri og margt fleira. Alltaf staðið mig vel í vinnu og oftar en ekki verið beðin að koma og leysa af þar sem ég hef áður starfað ef upp hefur komið tímabundin staða og ég verið laus. En að mestu fóru árin frá tuttugu til þrjátíu og átta ára í það að ala upp börnin mín og koma þeim til manns. En það telst ekki með!

Vinur minn hugsaði sig um smá stund og sagði svo: Þetta er alveg rétt hjá þér að það er eitthvað meira en lítið skrítið hér í gangi. Ég verð að segja þér frá fundi sem ég frétti af fyrir nokkru og það gæti verið útskýringin á því af hverju þú færð ekki vinnu.

Mér svelgdist á kaffinu þegar hann sagði mér söguna sem ég byrjaði greinina á. Hvað meinar þú? Ertu ekki í lagi? spurði ég. Og eftir hverju átti þá að ráða þessar ungu? Ja … það er auðvitað menntun en flokka átti CV fyrst eftir aldri og útliti. Síðan átti að kalla í viðtöl þegar það átti að ráða en á þessum tíma var mikið um ráðningar og í mörgum tilfellum var menntun tekin fram yfir útlit en í algjörri neyð og ef hætta var á að hægt væri að kæra fyrir jafnréttisráði var ráðin kona án silikons. Undir útlitsákvæði féll magn silikons sem var búið að troða í bróstin!! En … en … stundi ég við erum uppi núna en ekki á miðöldum og við búum við kvenfrelsi en ekki feðraveldi og konur eiga bráðum 100 ára kosningaafmæli!

Í gegnum hugann þutu hin og þessi hugtök og setningar runnu fyrir augunum á mér:
Ég hafði skilað ritgerð þar sem ég fjallaði um konur og sagnfræði og lesið fyrir þá ritgerð greinar eftir Margréti Guðmundsdóttur sem heitir; „Landnám kvennasögunnar á Íslandi“ og Þorgerði H. Þorvaldsdóttur; „Hvað er svona merkilegt við það að vera karlmaður.“ Önnur grein kom upp í hugann en það var grein Sigríðar Þorvaldsdóttur heimspekings sem skrifaði um „eðli kvenna í ritum heimspekinga“. Enn ein greinin var „Hin svokallaða þjóð“ eftir Sigríði Matthíasdóttur. Ég var búin að lesa mikið í bók Simone de Beauvoir, Le Deuxiéme Sexe, eða Hitt kynið sem kom út 1949. En útgangspunktur Simone er að konan fæðist ekki sem kona heldur verði kona. Og mér hafði verið bent á að femínistar nota hugtakið til að árétta að staða kvenna sé ekki náttúrlega sköpuð heldur skapist af menningu sem félagslega skilyrt hugtak! Ég er þessum konum ævinlega þakklát því þær gera mér kleift að setja í orð á blað það sem fer í gegnum hugann núna.

Shit! Sagði ég. Er þá enn í gildi það sem Sigríður M og Sigríður Þ, Margrét, Þorgerður og Simone bentu á í skrifum sínum?

„ ….Vjer biðjum um framfarir, um leið og vjer erum slagbrandur, sem meinar konum fósturjarðarinnar að hafa gagn af hæfileikum sínum.“ Þessi fleygu orð mælti Ólafur Ólafsson, fríkirkjuprestur og þingmaður, um aldamótin 1900. Þegar konur áttu fullt í fangi með að fá viðurkenningu sem fullgildir þegnar í þjóðfélagi gegnsýrðu þjóðfrelsis- og sjálfstæðisbaráttu.

Við konur eigum enn í dag fullt í fangi með að fá viðurkenningu sem fullgildir þegnar í íslensku þjóðfélagi! Við undirbúum hátíðarhöld til að fagna því að 100 ár eru liðin frá því að konur fengu kosningarétt á Íslandi. Í sömu viku og hátíðisdagurinn rennur upp sem er 19. júni hefur boðað komu sína hingað maður sem boðar „fagnaðarerindi“ karla sem hata konur! Eða karla sem líta á konur sem leikfang! Karla sem vilja lemja og niðurlægja konur!

Af hverju er körlum svona mikið í nöp við konur? Er það af því að við þegjum ekki? Sigríður Þorvaldsdóttir skrifar í grein sinni að heimspekingarnir, Aristoteles og Tómas frá Akvínó, hafi sagt að þögnin væri höfuðdjásn konunnar og konan væri ófullkominn karl. Og konum var gert að þegja í kirkjum.
Hegel, hinn þýski heimspekingur, gengur svo langt að segja að líf karlmannsins sé á hinum opinbera vettvangi en hlutverk konunnar sé innan veggja heimilisins og ekki eigi að hleypa þeim út á hinn opinbera vettvang því þær geti verið hættulegar.

Rousseau segir reyndar að konur séu gæddar hagnýtri skynsemi sem gagnist vel við búsýslu og barnauppeldi.
Shit! Shit! Shit! Hefur ekkert breyst frá tímum Aristotelesar? Eigum við konur að þegja? Fara strákarnir í einhverja leynitíma í fræðum Rousseau? Í alvöru, er tilgangur okkar að halda köllunum ánægðum? Erum við undir feðraveldi með því að þegja? Á Fjallkonan að fara að troða silikoni í brjóstin á sér til að fá að halda hátíðarræðu á 17. júní?

Við skulum hugleiða orð Ólafs Ólafssonar, þingmanns og fríkirkjuprests, sem hann lét falla á þingi um aldamótin 1900. Í dag eigum við ekki fullt í fangi með að vera taldar fullgildir þjóðfélagsþegnar vegna þess að þjóðfélagið er gegnsýrt af þjóðernis- og sjálfstæðisbaráttu. Í dag, árið 2014, eigum við konur fullt í fangi með að vera taldar fullgildir þjóðfélagsþegnar vegna þess að við erum hitt kynið! Við erum að berjast við útlitsdýrkun sem er komin langt fram yfir öll mörk, ranghugmyndir um kynlíf sem flæða um netheima.

Konur, rísum upp og látum ekki viðgangast að við séum flokkaðar eftir útliti, og silikoni! Látum ekki viðgangast að hér fái landgöngu maður sem fyrirlítur konur og vill kenna sonum okkar hvernig á að niðurlægja konur!

Njótið dagsins.

Höfundur er nemi á lokaskrefum í sagnfræði við Háskóla Íslands og þriðji varaþingmaður Framsóknarflokksins á suðurlandi.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283