Vín vikunnar er fallega dökk- kirsuberjarautt. Það er spænskt, vel kunnugt íslendingum, fær frábæra dóma meðal víngagnrýnenda og er hræódýrt þar að auki. Þetta vín passar einstaklega vel með íslensku lambakjöti, villibráð og öðru rauðu kjöti og ekki skemmir fyrir ef það er grillað. Vín vikunnar er Altos De Rioja Crianza 2010.
Vínsérfræðingurinn Þorri Hringsson skrifaði um vínið á heimasíðu sinni um daginn. Hann lofaði vínið í hástert og gaf því fjórar og hálfa stjörnu af fimm mögulegum.
Slík einkunnagjöf er ekki algeng fyrir vín í þessum verðflokki en þetta vín kostar aðeins 2.295 í vínbúðunum. Frábært verð fyrir þetta stórgóða vín.
Nýlega rataði til landsins þetta frábæra vín frá Rioja á Spáni og er nú fáanlegt í vínbúðunum. Rioja er hérað sem á djúpar rætur í þjóðarsálinni, enda hafa vín þaðan verið fáanleg hér frá því á bannárunum. Þegar áfengisbannið ríkti á íslandi frá 1915 til 1935 var sala á öllu áfengi bönnuð, að undanskildum spænskum léttvínum. Innflutningur á vínum frá spáni, og þá helst frá Rioja, var leyfður frá 1922 til að útflutingur á saltfiski gæti haldið áfram til Spánar.
Altos er ung víngerð sem leggur mikla áherslu á gæði. Hún var stofnuð árið 2006 með það að markmiði að búa til vín í nýjum stíl sem eru trú uppruna sínum í Rioja. Til verksins voru fengnir víngerðarmenn sem hafa skapað sér nafn fyrir framúrskarandi víngerð. Þriggja manna teymi sér um víngerðina, þeir Roberto San Ilde frá Finca Sobreño í Toro héraði, Bienvenido Muños Bodegas Muños í La Manca og ekki síst Jean-Marc Sauboa sem kemur frá einu virtasta vínhúsi heims, Chateu Haut Brion í Bordeaux. Saman hafa þeir skapað einstaka tegund af nútímalegum Rioja vínum.
Þeim hefur tekist að lyfta gæðum vínanna með mikilli einurð og finna gott jafnvægi á milli hins frjósama jarðvegs (Terroir) og hefðbundinna vinnubragða á vínekrunum með helstu mögulegu tækninýjungunum. Hver einasta þrúga er tínd af gömlum vínviði á vínekrum sem liggja hátt í nágrenni þorpanna Laguardia, Elvillar og Kripan. Öll vínin frá Altos eru látin eldast á eikartunnum, 80% 225 lítra á eikartunnum frá Bordeaux og 20% amerískri, og eru síðan geymd þar. Tunnurnar koma frá mismundandi tunnugerðarfólki og eru allar mismikið ristaðar. Félagarnir sem skipa þríeykið góða telja að þessi blöndunaraðferð gefi víninu þann mikla persónuleika sem það hefur. Áður en vínin eru sett á tunnur fer fram tiltölulega langt ferli þar sem hratið og skinnið er látið liggja í vökvanum og hitastigi er stýrt vandlega (cold macetation), ýmist á eikartunnum eða stórum stáltönkum.
Vínið er eingöngu gert úr Tempranillo. Þegar þrúgurnar koma í víngerðina er stilkurinn tekinn frá og svo er safinn kaldpressaður í fjóra daga áður en gerjun fer fram við 27°C. Vínið er er svo geymt í 13 daga til viðbótar með hratinu í stórum stáltönkum á meðan seinni gerjun fer fram. Það er síðan síað á 225 lítra eikartunnur, 80% franskar og 20% amerískar (sem gefa mismunandi bragð) og geymt á þeim í 12 mánuði áður er það fer á flöskur. Flöskurnar eru síðan geymdar í aðra 12 mánuði í kjallara víngerðarinnar áður en víninu er hleypt á markað.
Vínið er eins og áður segir fallega dökk-kirsuberjarautt. Í nefi hefur það nokkuð ágengan ilm af dökkum berjum, ilmríkum jurtum og krydduðum tónum af kanil sem vinna vel saman. Í munni finnur þú ferskt bragð af rauðum kirsuberjum og tóna af jurtum og kryddum sem eru svo fallega rúnnaðir af með ristaðri eik og vanillu. Sýran er góð. Hentar sérstaklega vel með rauðu kjöti, villibráð, kryddpylsum og hörðum ostum.