Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ályktun frá Kvenréttindafélagi Íslands

$
0
0

Stjórn Kvenréttindafélags Íslands hvetur formenn ríkisstjórnarflokkanna, Sigmund Davíð Gunnlaugsson og Bjarna Benediktsson, til að rétta við kynjahlutfall í ríkisstjórn Íslands.

Hallað hefur á konur í þeirri ríkisstjórn sem nú er við völd. Þar hafa þrjár konur gegnt ráðherraembættum á móti sex körlum og nú hverfur ein þessara kvenna, Hanna Birna Kristjánsdóttir, úr ríkisstjórn.

Vegna þessara breytinga skorar stjórn Kvenréttindafélags Íslands á Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins, að hafa mikilvægi jafns hlutfall kynja að leiðarljósi þegar ákvörðun verður tekin um skipan ráðherra.

Hallveigarstaðir, Reykjavík
21. nóvember 2014


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283