Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Við hvern er samtalið?

$
0
0

Ólafur Arnarson skrifar:

Þá er Hanna Birna Kristjánsdóttir, fráfarandi innanríkisráðherra, loksins búin að segja af sér. Þjóðin hefur horft á pólitískt dauðastríð hennar og hefur það um margt minnt á lestarslys, sem sýnt er ramma fyrir ramma. Forherðing og þráseta ráðherrans hefur verið slík að eðlilegt er að spurningar vakni, nú þegar hún hefur skyndilega ákveðið að segja af sér, um það hvað hafi valdið. Aðstoðarmaður hennar játaði á sig hegningarlagabrot í síðustu viku þegar honum varð loks ljóst að hann ætti enga vörn gegn sönnunargögnum sem ákæruvaldið hugðist leggja fram við aðalmeðferð sakamálsins sem fram átti að fara næsta dag.

Í liðinni viku hafa komið fram upplýsingar um upplýsingagjöf og samskipti fyrrverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum og núverandi lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu við hinn sakfellda aðstoðarmann. Jafnframt hefur komið fram að þrátt fyrir að lögregla hafi rannsakað símnotkun lykilstjórnenda innanríkisráðuneytisins í tengslum við lekamálið hefur símnotkun ráðherrans ekki verið rannsökuð. Samskipti lögreglustjórans við aðstoðarmanninn gefa fullt tilefni til athugunar á símnotkun ráðherrans og niðurstaða slíkrar athugunar getur mögulega varpað ljósi á upphaf lekamálsins og aðkomu ráðherra að því á byrjunarstigi.

Þegar horft er til baka yfir lekamálið og málflutning ráðherrans í fjölmiðlum, gagnvart lögreglu og á Alþingi er erfitt að komast að þeirri niðurstöðu að ráðherra vaði slíkan eld og brennistein einungis af tryggð við aðstoðarmann sinn. Opinber játning aðstoðarmannsins á refsiverðum verknaði hefur þótt vera ótrúverðug og því ótrúverðugari því oftar sem hann hamrar á því að hann hafi verið einn að verki. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum var fluttur til höfuðborgarsvæðisins án auglýsingar, eftir að forverinn sá sig knúinn til að hætta störfum innan lögreglunnar að því er virðist vegna afskipta ráðherrans af rannsókn hans á lekamálinu. Á Suðurnesin var lögreglustjórinn líka ráðinn án auglýsingar af einum forvera Hönnu Birnu, Birni Bjarnasyni. Vonandi varpar athugun á þætti núverandi lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu ljósi á upphaf lekamálsins.

Hanna Birna Kristjánsdóttir var efnilegasti stjórnmálamaður Íslands fyrir örfáum misserum. Að sönnu hefur hún aldrei leitt flokk sinn til sigurs í kosningum. Hún tapaði Reykjavíkurborg í hendur andstæðinga sem oddviti flokksins í borginni. Niðurstöður síðustu þingkosninga voru afleitar fyrir Sjálfstæðisflokkinn og sérstaklega slæmar í Reykjavík, þar sem Hanna Birna var í forsæti. Hún þótti hins vegar mikið pólitískt efni, sjálfsagður arftaki flokks og jafnvel framtíðar leiðtogi sinnar þjóðar. Hanna Birna er ekki lengur vonarefni. Ferill hennar er víti til varnaðar.

Við afsögn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur úr ráðherraembætti er áhugavert að lesa í ummæli pólitískra leiðtoga þjóðarinnar. Oddvitar ríkisstjórnarinnar lýsa miklum söknuði við brotthvarf hennar. Formanni Sjálfstæðisflokksins virðist efst í huga að mögulega geti Hanna Birna sest aftur í ráðherrastól á þessu kjörtímabili. Forsætisráðherra virðist telja Hönnu Birnu hafa verið flæmda úr embætti. Hanna Birna horfist ekki í augu við gjörðir sínar og lætur að því liggja að umhyggjan fyrir fjölskyldunni hafi ein ráðið ákvörðuninni. Oddvitar ríkisstjórnarinnar kenna fjölmiðlum og „hatursfullri“ umræðu um að mætur ráðherra hafi hrökklast af ráðherrastóli en neita að horfast í augu við þá staðreynd að á stuttum ráðherraferli hefur Hanna Birna Kristjánsdóttir grafið undan trausti almennings á innviðum stjórnkerfisins og ríkisstjórninni sjálfri. Hún hefur logið að þingi og þjóð og það ítrekað. Ekki verður betur séð en oddvitum ríkisstjórnarinnar þyki það allt í lagi. Þeir reyna að segja þjóðinni að svart sé hvítt og öfugt.

Við hvern er þetta samtal Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar? Þeir njóta báðir trausts og virðingar, en það gerði Hanna Birna Kristjánsdóttir líka fyrir örfáum misserum. Séu ríkisstjórnaroddvitarnir að beina orðum sínum til þjóðarinnar er augljóst að þeir eru ekki í tengslum við hana. Þá skilja þeir ekki eðli lekamálsins og án skilnings á eðli mála er vonlaust að draga lærdóm af þeim. Umræðan er ekki vandamálið heldur orð og gjörðir ráðherrans.

Eru oddvitar ríkisstjórnarinnar kannski alls ekki að tala við þjóðina? Beina þeir orðum sínum annað? Ef sú er raunin skilja þeir ekki hvaðan þeir hafa sitt umboð og munu þá fljótt verða sviptir því og alls ekki síðar en í næstu kosningum.

Það skiptir mestu við hvern samtalið er og í samtali skiptir öllu að menn kunni að hlusta.

Hafið það í huga, Sigmundur Davíð og Bjarni!

 

Pistillinn birtist fyrst á vef Ólafs Arnarsonar Tímarím.is 22. nóvember 2014og birtur hér með leyfi höfundar.

Ljósmynd af vef RUV


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283