Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

„Finnst ykkur þetta í lagi?“

$
0
0

Kristín Birna Stefánsdóttir skrifar:

Screen Shot 2014-11-22 at 04.03.33 e.h.

Ég ætla að segja ykkur sögu um mann sem að heitir Jói. Hún er löng, en ég vona að þið gefið ykkur tíma til að lesa hana.

Jói er einn af mörgum sem stendur í stanslausri baráttu við hið mikla svarthol sem við köllum þunglyndi. Hann ber þennan þunga bagga hvert sem hann fer, eins og stórt og mikið óveðursský sem hangir yfir honum. Hann hefur reynt að binda enda á líf sitt, en þökk sé góðum vinum sem neita að gefast upp á honum, hefur honum ekki tekist það.

Þeir sem ekki glíma við þennan hræðilega sjúkdóm eiga kannski erfitt með að sýna honum skilning, þessum myrka stað sem hugurinn dregur einstaklinginn á sem er svo hræðilegur að stundum flýgur öll skynsemi út um gluggann, og í staðinn hrannast upp neikvæðar og óhugnanlegar hugsanir. Hugsanir, sem fyrir manneskju sem ekki þjáist af þunglyndi virðast óskynsamar og jafnvel ósanngjarnar.

Það var svo einn daginn sem mælirinn hans Jóa fylltist aftur. Hann var alveg að bugast og datt í það. Hann rölti einn um litla bæjarfélagið sem hann á heima í og myrku hugsanirnar dembdust yfir hann. Honum fannst lífið ekki þess virði að lifa svo hann fór heim og fann sér hníf. Honum fannst hann ekki geta yfirgefið þennan heim án þess að senda besta vini sínum, honum Nonna, skilaboð með útskýringu og afsökunarbeiðni.

Nonni hafði skiljanlega mjög miklar áhyggjur og fannst að það besta í stöðunni væri að hringja í lögregluna og biðja um hjálp fyrir Jóa.

Lögreglan veit hver Jói er, hefur áður þurft að hafa afskipti af honum, en hann hefur nokkrum sinnum komið sér í vandræði. Þeir fara tveir og banka upp á hjá Jóa, sem að í mjög miklu tilfinningalegu uppnámi og hefur ekki hugmynd af hverju þeir eru þarna, gerir þau mistök að ota hnífnum að þeim. Óreiðan í hausnum á honum var með yfirhöndina. Lögreglan fór, en ekki lengi. Þeir komu aftur, klæddir brynjum og hjálmum, vopnaðir kylfum, piparúða og byssum.

Þegar Jói opnaði dyrnar í annað sinn ruddust þeir inn og byrjuðu að berja hann með kylfum til að ná honum niður. Meðan á þessu stóð sprautuðu þeir tvisvar piparúða á hann. Jói bar höndina fyrir sig, sem varð til þess að bein í framhandleggnum á honum fór í sundur og nokkrir puttar brotnuðu illa. Einhvern veginn náði Jói að ýta lögreglumönnunum út, loka dyrunum og skola andlitið á sér eftir piparúðann. Þarna byrjar Jói aðeins að róast.

Á þessum tímapunkti kom Nonni hlaupandi að húsinu fyrir aftan lögregluna, sem sneri sér við, hlóð skambyssu og miðaði að honum. Nonni varð logandi hræddur, hætti að hlaupa og labbaði rólega að. Hann gat ekkert gert nema bíða. Var í lagi með Jóa?

Eftir að hann skolaði andlitið á sér og náði aðeins að róast steig Jói út úr húsinu sínu, uppgefinn og illa særður á líkama og sál. Lögreglan kippti Jóa með sér og skellti honum í fangaklefa í fimm langa klukkutíma þangað til þeir fóru með hann upp á spítala og létu setja bráðabirgðagifs á hann áður en þeir skelltu honum svo aftur á bak við lás og slá. Hann fékk engin verkjalyf. Í klefanum fékk hann að dúsa þar til kvöldið eftir þegar þeir tóku skýrslu af honum, en eftir það var hann sendur EINN heim með þær upplýsingar að hann þyrfti að koma sér sjálfur suður morguninn eftir til að fara í aðgerð. Aðgerð til að gera við áverka sem þeir veittu honum.

Þessi saga er sönn og hún gerðist núna aðfaranótt mánudags síðastliðinn.

Sem betur fer biðu vinir Jóa heima hjá honum á mánudagskvöldið til að taka á móti honum svo að hann væri ekki einn. Ef svo hefði ekki verið er aldrei að vita nema að þessi saga hefði endað mun verr.
Jóa var komið suður í aðgerð strax á þriðjudagsmorguninn þar sem þurfti að setja plötu og sex skrúfur í handlegginn til þess að ná brotinu saman og tvær skrúfur í fingurna á honum. Vinir hans halda áfram að styðja við bakið á honum og munu aldrei gefast upp.

Nú spyr ég, finnst ykkur þetta í lagi? Finnst ykkur þetta ásættanleg aðferð til að takast á við alvarlega þunglyndan einstakling sem er sokkinn svo djúpt í svartholið að hann sér enga aðra leið en að enda líf sitt?

Það finnst mér ekki.

Samkvæmt fréttum Bæjarins besta www.bb.is hefur verið boðað til mót­mæla fyr­ir utan lög­reglu­stöðina á Ísaf­irði 29. nóvember. Í frétt Bæjarins besta stendur:

„…Er mót­mæl­un­um sér­stak­lega beint að aðgerðum lög­reglu fyrr í vik­unni sem leiddu til þess að maður hand­leggs­brotnaði. Boðað var til mót­mæl­anna á Face­book í gær­kvöldi. Á síðu viðburðar­ins kem­ur fram að maður­inn hafi aðeins fengið gifs til bráðabirgða en eng­in verkjalyf. Hafi hann síðan þurft að sitja í fanga­klefa í fimm klukku­stund­ir áður en hon­um var sleppt. Hann hafi þurft að koma sér sjálf­ur til Reykja­vík­ur í aðgerð. Í aðgerðinni þurfti að setja plötu og sex skrúf­ur í hand­legg­inn til þess að ná brot­inu sam­an, og tvær skrúf­ur í fing­urna á mann­in­um.

Lesið alla frétt Bæjarins besta hér. Mótmælin eru skipulögð og auglýst á Facebook.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283