Óeirðir brutust út í Ferguson, St. Louis eftir að kviðdómur komst að þeirri niðurstöðu að sýkna skyldi lögreglumann sem skaut hinn 18 ára Michael Brown til bana. Málið hefur valdið mikilli ólgu meðal íbúa St.Louis og víðar í Bandaríkjunum og þar er mótmælt á götum úti. Á Twitter logar allt í fréttum af óeirðunum og fólk liggur ekki á skoðunum sínum.
↧