Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Er það lóttó út lífið að vera öryrki?

$
0
0

Framtíðarsýn öryrkja – stutt erindi flutt á málþingi um mennska framtíð sem haldið var á vegum Húmanistaflokksins þann 30. nóvember 2014. Helga Björk Magnúsd. Grétudóttir skrifar:

Árið 2009 tóku öryrkjar á sig miklar kjaraskerðingar.

Þá voru gerðar ýmsar breytingar á lögum um almannatryggingar og lögum um málefni aldraðra sem leiddu til umtalsverðra skerðinga á kjörum aldraðra og öryrkja. Bætur almannatrygginga og þar af leiðir tekjur öryrkja hafa síðan þá hvorki náð að halda í við verðlagshækkanir, almenna launaþróun né hækkun lægstu launa og er munurinn gríðarlegur. Bilið er stöðugt að breikka.

Til að mynda hækkuðu lægstu laun á vinnumarkaði um 54,3% á tímabilinu 2008 til 2013, en örorkulífeyrir um 29%. Munurinn er rúmlega 25%. Lægstu laun hækkuðu nær tvöfalt meira, en lífeyrir á tímabilinu.

Skerðingarnar frá 2009 hafa aðeins verið leiðréttar að litlu leyti og sú leiðrétting kom aðeins fámennum hópi öryrkja til góða. Þeir verst settu sátu eftir og fengu ekki neitt. Samt eru fulltrúar ríkisstjórnarinnar sífellt að reyna að slá ryki í augun á almenningi og halda því fram að það sé búið að leiðrétta kjör öryrkja. Það er alls ekki rétt.

Krafa öryrkja í dag snýr fyrst og fremst að mannsæmandi framfærslu; örorkulífeyrir og tengdar greiðslur eru allt of lágar og duga ekki til framfærslu. Þessu þarf að breyta strax. Lögfesting raunhæfs lágmarksframfærsluviðmiðs væri ein leið til að bæta úr þessu. Almannatryggingakerfið er allt of flókið. Of margir bótaflokkar og víxlverkandi skerðingar vegna greiðslna frá TR, lífeyrissjóðum og atvinnutekna gera kerfið að heilum frumskógi sem erfitt er að rata um. Það þarf að einfalda þetta kerfi og gera það skilvirkara og skiljanlegra.

Við viljum ekki að fatlað fólk, hvort sem fötlunin er meðfædd eða að fólk hafi misst starfsgetu í kjölfar veikinda eða slysa, sé jaðarsett í þjóðfélaginu, mæti fordómum, festist í fátæktargildru og einangrist félagslega.

Aðgerðarhópur Háttvirtra öryrkja hvetur landsmenn alla til að skrifa undir áskorun til stjórnvalda um að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Og tryggja þar með fötluðu fólki og öryrkjum sjálfsögð mannréttindi.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283