Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Áheyrnarprufur fyrir stelpur 8-11 ára!

ÁHEYRNARPRUFUR fyrir stelpur á aldrinum 8-11 ára, til að leika í nýrri stuttmynd eftir Ásu Helgu Hjörleifsdóttur.

VETUR, NÓTT (vinnuheiti) er ný stuttmynd eftir Ásu Helgu Hjörleifsdóttur. Áætlaðar tökur eru 3 dagar á bilinu 12-16 janúar 2014, í Reykavík. Vintage Pictures (Hlín Jóhannesdóttir og Birgitta Björnsdóttir) framleiða myndina.

Laufey Elíasdóttir fer með aðalhlutverk myndarinnar, en við leitum nú að mótleikkonu hennar (dóttur hennar í myndinni), stelpu á aldrinum 8-11 ára, en myndin byggir að miklu leyti á samtölum mæðgnanna. Stelpan – Védís – er klár, á köflum langt á undan mömmu sinni, sem er oft ekki mjög raunsæ. Védís er því kannski nokkuð melankólísk, en ekki síður glettin.

Reynsla af leiklist er kostur en þó ekki nauðsynleg. Prufur verða 16.,17., og 18. desember í húsnæði Kvikmyndaskóla Íslands á Grensásvegi 1.

Áhugasamir hafið samband við casting.vetur@gmail.com


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283