Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Þarf forsætisráðherra sjöfalt fleiri aðstoðarmenn en manneskja í hjólastól?

$
0
0

Mikið fatlað fólk er oft með aðstoðarmann. Sigmundur Davíð forsætisráðherra er með sjö aðstoðarmenn. Ég hafði ekki áttað mig á því hversu mikil fötlun það teldist að vera formaður Framsóknarflokksins. Hvað þá að þú værir talinn það skertur að þú þurfir sjöfalt fleiri aðstoðarmenn en manneskja í hjólastól.

Eiginlega er bara mesta furða að forsætisráðherra smáríkis eins og Íslands skuli komast af með svona fáa aðstoðarmenn. Ég sé ekki hvernig hann kemur neinu í verk.

Hvað ef að einn aðstoðarmaður er að hella upp á kaffi, annar fór í bakaríið, sá þriðji fór á klósettið, fjórði tilkynnti veikt barn og mætti ekki, fimmti væri að fínpússa ræðu, sjötti að leka upplýsingum í blaðamenn, sjá sjöundi að sækja jakkaföt úr hreinsun og þá allt í einu hringir síminn? Þarf forsætisráðherra þá að svara sjálfur? – Það sér hver maður að ráðuneyti hans er ekki starfhæft svona fáliðað.

Mér þykir sennilegt að einhverjir aðstoðarmenn Sigmundar hafi sína eigin aðstoðarmenn. Annars gengur dæmið ekki upp. Við erum nokkur hundruð þúsund manna þjóð, ekki má gleyma því. Forsætisráðherra Íslands hefur gífurlega margt á sinni könnu. Hann er ekki bara leiðtogi þjóðar þar sem rík hefð er fyrir því að kjósa yfir sig mesta vitleysinginn heldur skilst mér að hann sé einnig sérstakur verndari Kaupfélags Skagfirðinga.

Það er í svo mörg horn að líta. Það þarf að viðhalda einokunarstöðu stórfyrirtækja, horfa framhjá því þegar flokksmenn í Reykjavík daðra við útlendingahatur, flæma heilbrigðisstarfsfólk úr landi og gefa þriðja hverju heimili í landinu peninga á kostnað hinna. Eitt er víst að Sigmundur gæti ekki verið það eyðileggingarafl sem hann er ef hann væri ekki með öfluga aðstoðarmenn sér við hlið.

Þótt aðstoðarmennirnir lyfti grettistaki í markmiðum stjórnvalda að gera landið óbyggilegt nema fyrir kvótaeigendur, þá er ljóst að þeir eru ekki að ná að fegra forsætisráðherrann og ríkisstjórn hans í fjölmiðlum. Þess vegna þarf að skera niður hjá RÚV. Það verður erfiðara fyrir þessa kolbrjáluðu árásarblaðamenn í Kastljósinu að afvegaleiða umræðuna með staðreyndum þegar ekki eru til peningar til að borga þeim laun.

Ævintýraheimur Sigmundar

Ég fæ það stundum á tilfinninguna að Sigmundur búi í ævintýraheimi. Það er kannski skiljanlegt í ljósi þess að þegar maður er moldríkur hvítur kall á Íslandi gæti maður allt eins verið Gandalfur úr Hringadróttinssögu. Enginn getur snert mann og maður getur látið ótrúlega hluti gerast. Eins og t.d. færa lögregluna á Höfn úr Suðurkjördæmi yfir í Norðausturkjördæmi. Blaðamenn og bloggarar eru þá í hlutverki vondu og ógeðslegu Orkana sem Gandalfur forsætisráðherra þarf að kljást við reglulega. Stundum bíður forsætisráðherra ósigur.

Hinir þingmenn Framsóknarflokksins eru þá föruneyti þingsins. Pattaralegir Dvergar og Hobbitar með lögheimili sín úti á landi sem elta forsætisráðherrann sinn í blindni í þeirri von að sigra drekann ógurlega sem rændi og eyðilagði arfleifð og orðspor þeirra. Verst að þeir vita ekki almennilega hver drekinn er. Framsóknarmenn halda margir að hann sé Evrópusambandið, múslimar eða innfluttar matvörur. Þeir sjá ekki að drekinn ógurlegi er sjálfur Gandalfur forsætisráðherra og föruneyti þingsins sjálft.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Trending Articles