Vinirnir Guðmundur Páll Líndal og Fannar Guðmundsson hafa hrundið af stað hinum íslenska leynijólasveinaleik (e. Secret Santa). Leynijólasveinaleikir virka þannig að fólk skráir sig til þáttöku og fær hver þáttakandi úthlutað þáttakanda sem hann á að gefa jólagjöf.
Oft eru slíkir leikir viðhafðir innan vinahópa, en í seinni tíð hefur tíðkast erlendis að slíkir leikir séu aðgengilegir öllum.
Íslenski leynijólasveinninn er aðgengilegur öllum sem vilja taka þátt og geta einstaklingar skráð sig til þáttöku á Facebook.
Þátttökugjald er ekkert og eini kostnaðurinn er gjöfin sem viðkomandi velur að gefa.
Ekki þarf að hafa áhyggjur af því að einhver gefi dýrari gjöf en maður sjálfur, enda snýst leynijólasveinninn ekki um verðmæti gjafanna heldur það eitt að gleðja ókunnuga manneskju í tilefni jólanna
Hægt er að skrá sig til þáttöku til og með 17. desember en eftir það verður lokað fyrir skráningar. Þeir sem hafa skráð sig til þáttöku munu fá nafni úthlutað af handahófi þann 18. desember og ráða þá hvernig gjöf þeir vilja gefa. Gjafir geta verði aðkeyptar eða heimatilbúnar, en þeir félagar hvetja þáttakendur til að sýna frumleika í gjöfum.