Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Konunglegur Prince Polo eftirréttur

$
0
0

Hér kemur uppskrift af óvanalegum og sérstökum eftirrétt frá Viktoríu Ýr Norðdahl. Prins Póló aðdáendur geta tekið gleði sína því uppistaðan í réttinum er einmitt súkkulaðikexið sívinsæla.

Viktoría Ýr Norðdahl.

Viktoría Ýr Norðdahl.

6 stk Prince Polo

1 lítil dós Bláberjaskyr

1 peli rjómi

1 krukka Bláberjasulta td. frá Den Gamle Fabrik

Notið meðalstórt form, ef kringlótt, þá ca. 25 sm. í þvermál.

Myljið Prince Pólóið og þrýstið því á botninn.

c3_prince_polo___wafelek_ponadczasowy

Þeytið rjómann.

Hrærið skyrið svo það verði létt og blandið rjómanum saman við.

Smyrjið skyrblöndunni yfir Prince Polo mylsnuna.

Breiðið plastfilmu yfir og frystið.

Tekið úr frysti nokkrum klukkustundum fyrir notkun.

bl

Velgið bláberjasultuna í potti og smyrjið henni yfir frosinn eftirréttinn.

Tilvalið að skreyta með ferskum bláberjum

Geymt í kæli þar til boðið fram.

Einnig er hægt að útbúa þetta beint í litlar skálar.

Verði ykkur að góðu!

Prince Polo Classic_36g


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283