Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Gómsætt Prince Polo ‘lasagna’úr eftirréttasamkeppninni

$
0
0

Á næstu dögum birtum við vinningsuppskriftirnar úr eftirréttasamkeppninni sem Kvennablaðið og Prince Polo efndu til á dögunum. Önnur uppskriftin sem við birtum er Prince Polo Lasagna sem Sunna Líf Þorbjörnsdóttir sendi inn.

prince-polo

PrincePolo Lasagna

Innihald
6 stk  Prince Polo
200 gr ristaðar möndluflögur
Ís

Ís
½ rjómi
4 egg
2 eggjarauður
7 msk sykur

c3_prince_polo___wafelek_ponadczasowy

Aðferð
Byrjið á því að þeyta rjómann. Þeytið (í annarri skál) saman egg, eggjarauður og sykur þar til útkoman er orðin froðukennd. Blandið rjómanum og eggjablöndunni saman. Myljið Price Polo í matvinnsluvél eða í plastpoka og skiptið ísblöndunni í þrjá jafna hluta. Notið helst smelluform og setjið fyrsta hlutann af ísblöndunni í botninn. Stráið 1/3 hluta af Prince Polo mylsnunum og 1/3 af ristuðum möndlum yfir fyrsta lagið. Endurtakið þar til þrjú lög af hvoru eru komin í formið.

Tilvalið er að hella bráðnu súkkulaði (ljósu eða dökku, eftir smekk) yfir afraksturinn til að gera réttinn ennþá girnilegri. Einnig er hægt að nota þeyttan rjóma með örlitlum sykri og kakódufti.

Réttinn þarf svo að frysta í a.m.k. 6-8 klukkustundir áður en hann er borinn fram. Best er að taka hann úr frystinum áður en hann er skorinn.

-2Voilá!

Við munum við birta fleiri verðlaunauppskriftir úr Prince Polo-eftirréttasamkeppninni. Ekki missa af þeim!

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283