Við höldum áfram að birta vinningsuppskriftirnar úr Prince Polo eftirréttasamkeppninni. Í dag er það dásamlegur Prince Polo eftirréttur sem börnin elska úr smiðju Kolbrúnar Tinnu Jónsdóttur.
Marengs 4 eggjahvítur 150 gr púðursykur 80 gr sykur Eggjahvítur þeyttar þar til þær verða loftkenndar og þá er sykri bætt við mátt og smátt. Þeytist þar til alveg stíft. Breiddu úr bökunarpappir á plötu úr ofninum. Eggjahvítublandan er sett á með skeið. Þú ræður forminu, það getur verið ferkantað, hjartalagað eða kringlótt (ágætt er að teikna formið á pappírinn áður). Þetta er stór uppskrift. Það getur verið gott að gera marengs daginn fyrir notkun. Hitið ofninn í 150 gr og bakið í ca 40 mínútur. Karamellubráð 2 dl rjómi 50 gr smör 120 gr púðursykur 1 tsk vanilludropar Allt sett í pott og hitað við vægan hita að suðu. Látið malla þar til karamellan þykknar aðeins.
Toppur 4- 6 Price Polo skorin í litla bita 2-4 bananar skornir í sneiðar Bitunum og bönununum er raðað ofan á kældan marengsinn og karamellubráð hellt yfir. Þeyttur rjómi er settur yfir allt og í lokin er rétturinn skreyttur með ferskum berjum.