Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Glæsilegur galdrameistari

Sagan af Síðasta galdrameistaranum, sem tilnefnd er til íslensku bókmenntaverðlaunanna 2014,  gerist einhvers staðar á Norðurlöndum í fornöld þar sem frumstæðar galdraverur og dularfullar völvur eru á sveimi meðal manna, álfa, jötna og hagleiksdverga.

Mennirnir eru sem fyrr til vandræða, þeir vilja drottna yfir öllum heiminum, útrýma forneskjunni og innleiða nútímann í ríki sitt. Aðalpersónan Kári er unglingstötur sem býr hjá frænda sínum sem er rammgöldróttur og þegar sá gamli lætur í minni pokann fyrir ógurlegum dreka er stáksi skyndilega dubbaður upp í ábyrgðarmikið hlutverk galdrameistara ríkisins. Fyrst þarf hann þó að sanna sig og leysa þrjár þrautir og nú eru góð ráð dýr því Kári kann ekkert að galdra.

Ármann Jakobsson hefur skrifað umtalsvert sem fræðimaður auk tveggja skáldsagna, sem báðar fengu afbragðs viðtökur, og nú bætir hann fyrstu barnabókinni í ritaskrá sína. Ármann er snjall sögumaður sem hefur alla þræði í hendi sér. Hann er víðlesinn í miðaldabókmenntum; kunnugur öllum þemum, frásagnarþáttum, minnum og brellum úr sagnaarfinum og ber sagan þess greinileg merki.

Ármann sækir persónur og efnivið í fantasíur og fornaldarsöguna frægu um Hrólf kraka sem er hetjusaga. Hetjuímyndin er þó öfugsnúin í Galdrameistaranum því Kári er engin hetja heldur miklu líkari friðsömum hobbita sem skyndilega ber  örlög heimsins á herðum sér, og vinur hans, yfirhirðsveinninn Hróðgeir, er spjátrungur og fatafrík sem pissar á sig og gubbar af hræðslu þegar hætta steðjar að. Ýmsu fleiru er snúið á hvolf í sögunni og fátt er eins og það virðist við fyrstu sýn.

Hver er það t.d. sem löðraði hendur gamla galdrameistarans í handáburði svo hann gat ekki beitt galdrastafnum sínum? Og hver er Lambi, sá dularfulli krakki sem þvælist fyrir öllum? Og hvort er vænlegri þjóðhöfðingi til framtíðar, Hrólfur kraki eða Skuld drottning?

Image may be NSFW.
Clik here to view.
jpv114532

Það besta við þessa bók er ekki frumlegur efniviður hennar og skrautlegur ævintýraheimur þar sem bókmenntaarfurinn er uppfærður, ekki persónurnar sem eru ljóslifandi og launfyndnar og eiga lipur samtöl sín á milli (senan með dvergunum Virfi og Skirfi er óborganleg), ekki spennandi framvindan sem sífellt býður upp á nýja og óvænta snúninga, heldur er það orðfærið, kjarnyrt og stílhreint.

Sagan er ætluð lesendum frá 9 ára aldri en efalítið hentar hún bæði yngri og eldri. Það er hvorki talað niður til lesenda með barnamáli né skrúfað upp með tilgerð og torfi heldur renna bæði saga og samtöl liðlega áfram innan um gömul orð og orðatiltæki og heiti og nöfn úr  fornum bókum.

Það er ekki fyrir neina aukvisa að láta persónur aftan úr grárri forneskju tala þannig að það sé bæði læsilegt, trúverðugt og skiljanlegt 21. aldar lesanda  sem er vanur því að afþreyingin streymi til hans gegnum fingurgómana úr ipadinum. Ármann hefur góð tök á tungumálinu og veit nákvæmlega hvað hann er að gera.

Ég er fullviss um að saga eins og þessi auðveldar ungum lesendum síðar að ganga inn í heim íslenskra fornbókmennta og njóta menningararfsins sem við erum svo stolt af, að minnsta kosti á tyllidögum.

Galdrameistarinn er glæsileg frumraun hjá Ármanni og vonandi á hann eftir að galdra fram fleiri slíkar og auðga þannig íslenska barnabókaflóru.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283