Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Þegar ég var átta ára undir stjórn Jaruzelskis 1/100

$
0
0

Geimdagurinn

Þegar ég var átta ára undir stjórn Jaruzelskis var haldinn svona „geim-þemadagur“ í skólanum mínum. Hápunktur dagsins var að það mætti einhver  maður í einkennisbúningi með massífan hatt. Ég ímynda mér að þetta hafi verið pólski geimfarinn Miroslaw Hermaszewski, hann var og er alltaf að þvælast um skóla að hitta krakka og svoleiðis. Ég játa að ég er samt ekki viss. Það er langt síðan. (Ég var bara átta ára. Og Jaruzelski var við stjórn. Pólland var kommúnistaríki. Hefur það komið fram?)

Það sem ég man hins vegar mjög vel er að gesturinn góði fékk plantaðar spurningar. Heimsókn hans var æfð.  Það var fyrirfram ákveðið að strákur og stelpa myndu spyrja hann sína spurninguna hvort. Eitthvað svona eins og „Hvernig lítur Pólland út, séð úr geimnum?“ Það fékk enginn að spyrja um það sem alla langaði virkilega til að vita:

„Hvernig kúkar maður og pissar í þyngdarleysi?“

Það er athyglisvert að ég hef gleymt öllum smáatriðum þessa dags, en eftir situr minning um þá tilfinningu að maður er að taka þátt í einhverju sem er feik. Í því felst ákveðin hughreysting. Það þýðir að jafnvel átta ára börn koma auga á augljósar blekkingar jafnvel þó þau spili með.

 

Þessi pistill birtist fyrst á www.pawel.is í janúar 2013


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283