Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Grafalvarleg staða á Þingeyri og Flateyri

$
0
0

Suðureyri 11. Janúar 2015.

Efni: Beiðni um fund vegna alvarlegrar stöðu atvinnumála á Þingeyri og á Flateyri.

Sent til: Gunnar Bragi Sveinsson 1. Þingmaður Norðvesturskjördæmis og Einar Kristinn Guðfinnsson 2. Þingmaður Norðvesturkjördæmis.

 

„Hér með óska ég eftir því að kallaður verði saman fundur með þingmönnum Norðvesturkjördæmis strax í næstu viku til að ræða grafalvarlega stöðu atvinnumál á Þingeyri og á Flateyri.

Einnig óska ég eftir því að á fundinn verði boðaðir fulltrúar Byggðastofnunar, Ísafjarðarbæjar og Verkalýðsfélags Vestfjarða ásamt fulltrúum heimamanna.

Í ljósi þess að öllu starfsfólki var sagt upp hjá fiskvinnslu Vísis hf. í Grindavík um sl. áramót og að engin niðurstaða er enn komin hjá Byggðastofnun um úthlutun byggðakvóta til þessara staða er staða atvinnumála á Þingeyri og á Flateyri í mikilli óvissu og atvinnuöryggi fjölda fjölskyldna í uppnámi. Þess má geta að starfsfólk Vísis á Þingeyri þarf að svara því fyrir næstu mánaðarmót hvort það þiggur vinnu hjá fyrirtækinu í Grindavík svo pressan er mikil á að flytja búferlum nauðugt ef enga vinnu er að fá heima fyrir og fara frá eignum sínum og því samfélagi sem það kýs að búa í.“

Með ósk um skjót viðbrögð.

Virðingarfyllst,

Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþingismaður Norðvesturkjördæmis.

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283