Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Hvað finnst ríkisstjórninni um Guantanamo og pyntingar?

$
0
0

Hinar alræmdu Guantanamo-fangabúðir áttu þrettán ára afmæli sunnudaginn 11. janúar og hafa því náð aldri yngsta fangans sem þar hefur afplánað án dóms og laga. Það vekur athygli mína að þrátt fyrir að píratar hafi tekið af skarið 12. desember síðastliðinn og borið fram, ásamt öðrum flokkum í stjórnarandstöðu, þingsályktunartillögu um fordæmingu pyntinga leyniþjónustu Bandaríkjanna í kjölfar útgáfu skýrslu öldungadeildar Bandaríkjaþings þess efnis, þá mælir enginn stjórnarliða með tillögunni. Því sefur sú tillaga værum svefni í nefnd í iðrum Alþingis.

Tillagan sefur þrátt fyrir einróma þingsályktun allra flokka vorið 2008 um að fordæma skyldi ómannúðlega meðferð á föngum í Guantanamo Bay-fangabúðunum, en nýútkomin þingsályktunartillaga ítrekar þá ályktun í ljósi nýrra upplýsinga.

Bjarni Benediktsson mælir ekki með tillögunni

Ekki hefur heyrst múkk frá Bjarna Benediktssyni um nýju þingsályktunartillöguna þrátt fyrir að árið 2008 hafi hann sem formaður utanríkismálanefndar ítrekað mikilvægi mannréttinda og alþjóðlegra mannúðarlaga í nefndaráliti um fordæmingu á Guantanamo-búðunum:

„Ég vísa til þess sem segir í nefndarálitinu um að nefndin ítreki mikilvægi þess að alþjóðleg mannúðar- og mannréttindalög séu ætíð virt af öllum ríkjum heims og að nefndin hafi skilning á mikilvægi baráttunnar gegn hryðjuverkum en áréttar að sú barátta getur aldrei réttlætt mannréttindabrot.“

Tillagan sefur þrátt fyrir miklar áhyggjur forsætisráðherra af því að Ísland gæti hafa „verið misnotað“ til þátttöku í pyntingarherferð Bandaríkjamanna á árunum 2001–2007 og segi málið í rannsókn.

Er þeim alveg sama?

Nú er dagljóst að Bandaríkjamenn stunduðu (eða stunda enn) glæpsamlegar pyntingar í leynifangelsum víða um heim en einnig í Guantanamo, þar sem hundruðum manna er enn haldið í ömurlegum aðstæðum án ákæru eða réttarhalda. Á meðan situr ríkisstjórn Íslands á höndum sér og heldur upp á þrettán ára afmæli Guantanamo-fangabúðanna með þöglu samþykki sínu.

Myndin er fengin af vef bloggi bandaríska Amnesty International


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283