Þorfinnur Ómarsson er búsettur í Brussel og gerði sér eins og margir ferð til Parísar síðastliðinn sunnudag til að taka þátt í samstöðugöngunni. Hann birti á Facebook-síðu sinni lista yfir öll þau þjóðlönd sem tóku þátt í atburðinum og þar er Ísland greinilega ekki á blaði.
Þorfinnur var í góðu viðtali hjá þeim Frosta og Mána í Harmageddon í morgun og þar benti Þorfinnur á að skýringar forsætisráðuneytisins um að staðgengill sendiherra okkar í Frakklandi hefði verið í göngunni fyrir Íslands hönd stæðust að öllum líkindum ekki skoðun.
Þorfinnur sagði að þessar útskýringar væru í besta falli hæpnar eftiráskýringar því umræddur starfsmaður hefði ekki verið opinberlega skráður í gönguna sem fulltrúi ríkisstjórnar Íslands þótt hún hefði verið viðstödd gönguna eins og Þorfinnur og milljónir manna. Þorfinnur benti einnig á að opinberir gestir Frakka hefðu hist við athöfn við forsetahöllina og þaðan verið ekið í lögreglufylgd til göngunnar.
Hinn íslenski starfsmaður sendiráðsins var ekki þar á meðal enda tekur listinn yfir gesti Frakklandsforseta af allan vafa um að fulltrúi Íslands var ekki þátttakandi í göngunni í neinum skilningi þrátt fyrir yfirklór forsætisráðuneytisins um annað. Hér má skoða listann í heild sinni.
UPPFÆRT
Síðdegis í dag birtist yfirlýsing á vef forsætisráðuneytisins. Þar segir: „Ráðuneytið telur hins vegar, eftir á að hyggja, að betur hefði farið á því að einhver af æðstu embættismönnum þjóðarinnar hefði mætt til göngunnar.“
Ekki er einu orði vikið að starfsmanni sendiráðsins í yfirlýsingunni sem má sjá hér.