Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Þorpin okkar!

$
0
0

Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar:

Vítt og breitt um landið eiga margir rætur að rekja til sjávarþorpanna sem kúra undir fjallshlíðum eða standa við víkur og voga. Þau hafa orðið til og byggst upp vegna hagstæðrar legu sinnar við sjó og góðs aðgengis að gjöfulum fiskimiðum, og í framhaldinu hefur byggst upp góð hafnaraðstaða til að sinna sjávarútvegi ásamt viðskiptum með vöru og þjónustu.

Þessi sjávarþorp eiga sér mikla sögu og þar hefur lífið ekki bara verið saltfiskur, þar hefur menning og nýsköpun blómstrað og margir andansmenn vaxið úr grasi, lifað og starfað, meðal annars rithöfundar, tónlistarmenn, leikarar, frumkvöðlar, vísindamenn, læknar, skólafólk og stjórnmálamenn sem hafa talið sér það til tekna að hafa vaxið úr grasi og þroskast í sjávarþorpi.

Hin seinni ár hefur byggð í mörgum sjávarþorpum farið hnignandi og greinir menn á um hverju er um að kenna; er það eingöngu hinn mikli sogkraftur til þéttbýlisins sem ræður för eða eru það fleiri þættir og mannanna verk sem vega þar þyngst?

Ég er ekki í nokkrum vafa um það sem þorpari sjálf að þetta hvorttveggja hefur mikið að segja og margir samverkandi þættir eru orsakavaldar. Stærsti orsakavaldurinn er þó hið niðurnjörvaða kvótakerfi sem lýtur eingöngu lögmálum markaðarins að því leyti að hinir stóru og sterku gleypa hina minni í greininni með tímanum og samfélagsleg sjónarmið, frumbyggjaréttur og starfsöryggi íbúa þorpanna er að engu haft og kastað út í hafsauga.

Ljósmynd/HBH

Ljósmynd/HBH

Einn góðan veðurdag er staðan sú að sjávarþorpin sem iðuðu af mannlífi og nægri atvinnu standa frammi fyrir því að þau megi ekki stunda sjósókn lengur, fiskvinnsla leggst af og þjónustuaðilar hverfa og önnur opinber starfsemi fjarar út smátt og smátt.

Búið er að mergsjúga allt fjármagn í burtu svo að þeir sem eftir sitja hafa ekkert fjármagn né lánstraust til þess að skapa sér atvinnu eða gera eitthvað annað. Þannig birtist hinn kaldi veruleiki einu þorpi í dag og öðru á morgun og enginn veit hver verður næstur.

Er þetta sú byggðaþróun sem við viljum sem þjóð, að sjávarþorpin okkar hringinn í kringum landið standi frammi fyrir og dagi uppi með sína menningu og fjölbreytt mannlíf og menningararf? Ég segi Nei!

Það getur ekki verið að við séum svo skammsýn að við ætlum að kasta fyrir róða öllum þeim mannauði og verðmætum sem skapast hafa í hverju sjávarþorpi, það væri glapræði.

En tíminn er naumur og byggðastefna liðinna ára hefur verið ómarkviss og handahófskennd og birst í skammtímalækningum og plástrum hér og þar í stað þess að þora eða vilja taka á meininu sjálfu sem er að tryggja undirstöður þorpanna með aðgengi að fiskimiðunum og binda aflaheimildir varanlega við byggðirnar.

Ég vil umbylta kvótakerfinu en þetta er aðgerð sem á strax að taka út fyrir sviga og fólk úr öllum flokkum á að sammælast um að framkvæma. Vilji er allt sem þarf!

Önnur brýn byggðamál eins og samgöngur, jöfnun búsetuskilyrða, góð heilbrigðis- og menntunarskilyrði óháð búsetu verða áfram baráttumál en undirstaðan verður að vera til staðar svo hægt verði að auka fjölbreytni í atvinnulífinu með góðri háhraðatengingu og ótal tækifærum í ferðaþjónustu og annarri nýsköpun, svo sem þjónustu við sjávarútveginn.

Sá mikli vandi sem íbúar Þingeyrar og Flateyrar standa nú frammi fyrir í atvinnumálum, og glímt er við að leysa, er ekkert einsdæmi og ekki fólkinu þar að kenna heldur ranglátu fiskveiðistjórnarkerfi sem stjórnmálamenn bera ábyrgð á og verða að gangast við og viðurkenna og grípa til varanlegra aðgerða. Ekki í formi ölmusu eða styrkja heldur að færa aftur til byggðanna réttinn til að sækja sjó og bjarga sér á eigin forsendum.

Frumbyggjarétt þessara byggða á að virða og atvinnuréttindi íbúanna. Núverandi kynslóð skuldar líka forfeðrum sínum sem byggðu upp þessi þorp með dugnaði og framsýni að skila aftur því sem frá þeim hefur verið tekið með ákvörðun Alþingis, það er að segja „Lífsbjörginni“ sjálfri!

 

Höfundur er alþingismaður Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283