Þegar maður á lítil börn þá er það stundum hlutskipti manns að setjast niður með þeim og lita eða teikna. Þetta er ekkert sérlega skemmtilegt ef maður hefur enga hæfileika á því sviði að teikna og hefur lítið gaman af því að lita. Ég segi fyrir sjálfa mig að ég get ekki teiknað þótt ég ætti að vinna mér það til lífs og mér finnast litabækur ætlaðar börnum alveg geispandi lítið spennandi.
Það eru hinsvegar ekki bara krakkar sem hafa gaman af því að lita og fullorðið fólk um allar trissur litar í litabækur sem ætlaðar eru fullorðnum. Þessu komst ég að eftir stutt grúsk á vefnum. Það eru alveg heilu klúbbarnir sem snúast um litabækur fullorðina. Þá eru viðfangsefnin kannski flókin mynstur, geometrísk form og mandala sem eru hringlaga völundarhús og tákna veröldina eða nokkurskonar míkrókosmos í Hindu- og Búddisma.
Margir trúa því að það sé róandi fyrir hugann að lita og sannarlega eru litir notaðir í listmeðferðum. Það skaðar allavega ekki að prófa að prenta út nokkrar síður og sjá hvort maður hefur gaman af þessu eða ekki. Þetta býður í það minnsta upp á tilbreytingu frá hundleiðinlegum litabókum sem ætlaðar eru börnum. En hvort þið náið nokkrum andlegum bata við þessa iðju skal ég ekki segja.
Ég týndi til nokkrar síður sem auðvelt er að prenta út.
Mynd 1 er hægt að prenta út hér
Mynd 2 er hægt að prenta út hér
Mynd 3 er hægt að prenta út hér
Mynd 4 er hægt að prenta út hér