Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Um vopnaburð og valdbeitingarheimildir lögreglu

$
0
0

Sérstök umræða um vopnaburð og valdbeitingarheimildir lögreglu verður í þinginu kl. 15.30 í dag og Kvennablaðið hvetur lesendur sem eiga þess kost að fylgjast með umræðunum í beinni útsendingu frá Alþingi.

Af vef Pírata.

„Frummælandi er Helgi Hrafn Gunnarsson og innanríkisráðherra verður til andsvara. Reiknað er með þátttöku allra þingflokka í umræðunni.

Umræðurnar taka 30 mínútur og taka fulltrúar allra flokka þátt í umræðunni. Helstu áherslur í umræðunni eru þarfir lögreglunnar fyrir búnað og samráð og eftirlit Alþingis með framkvæmdarvaldinu.

Eftir hina sérstöku umræðu sem getið var hér að framan, mun Helgi Hrafn eiga tvær samræður við innanríkisráðherra sem varða lögreglu. Þessi umræða mun eiga sér stað á bilinu 16.30-17 í dag.

Fyrirhuguð kaup lögreglunnar á drónum. Í þessari umræðu mun Helgi Hrafn spyrja ráðherra eftirfarandi spurninga.

  1. Hefur lögreglan fest kaup á dróna eða fyrirhugar hún slík kaup? Hefur lögreglan eignast dróna með öðrum hætti? Er fyrirhugað að hún fái slíkan búnað að gjöf eða láni?

  2. Telur ráðherra lögreglu hafa lagaheimild til að kaupa og nota dróna?

  3. Hvernig sér ráðherra fyrir sér að dróni í eigu lögreglunnar nýtist frá degi til dags?

  4. Telur ráðherra að setja þurfi sérstakar reglur um notkun lögreglunnar á drónum? Ef svo er, hvert yrði einkum efni slíkra reglna?

Eftirlit með starfsemi lögreglu. Í þessari umræðu mun Helgi Hrafn spyrja innanríkis
ráðherra:

  1. Hvenær er að vænta niðurstöðu starfshóps sem taka átti til skoðunar hvernig komið yrði á virkara eftirliti með starfsháttum lögreglu?

  2. Er ráðgert að um innra eftirlit verði að ræða eða er stefnt að því að eftirlitið verði alfarið sjálfstætt og óháð löggæsluyfirvöldum?


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283