Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Verður Edda Björgvins útvarpsstjóri?

$
0
0

Til hamingju með að sækja um stöðu útvarpsstjóra. Óttastu ekki eins og margir að þetta verði pólitísk ráðning og því sé umsóknarferlið í reynd aðeins sýndarleikur?

Ég verð nú að vitna í umhverfisráðherra sem fullyrti hjá Gísla Marteini að fagmennskan hefði ævinlega verið í fyrirrúmi  við ráðningar og ég er sannfærð um að það gildir við ráðningu útvarpsstjóra … er það ekki?

Hverjar yrðu þínar áherslur ef þú fengir útvarpsstjórastöðuna?

Þær sömu og í meistararitgerð minni: Húmor í stjórnun

Margir færa rök fyrir því að RÚV hafi mikilvægi í upplýsingadreifingu þegar kemur að öryggi landsmanna. Eru þessi rök ekki úrelt á tímum nú-fjölmiðlunar þar sem fréttir, jafnvel hamfarafréttir birtast á samskiptamiðlum áður en þær rata í hefðbundna fjölmiðla?

Ég þori nú að fullyrða að upplýsingadreifing er ekki helsta hlutverk RÚV.

Engin kona hefur gegnt þessari stöðu, er mál til komið að kona verði ráðin í starf útvarpsstjóra?

Löngu tímabært … en eru ekki strákarnir miklu klárari?  Annars er ég glötuð í að standa með mér – síðast þegar ég sótti um embætti sagði ég í viðtalinu sem haft var við mig að mér þætti nú fengur að því fyrir viðkomandi stofnun ef þau réðu reynsluboltann og snillinginn … (nafnið er leyndarmál)

Hvað gerir þig einstaka sem umsækjanda?

Stuðboltinn, gleðipinninn og færnin í að vinna með fólki!  Nýjustu straumar í stjórnunarfræðum í heiminum eru: „Leading with the heart – leading with happiness“.

Hvernig myndir þú hagræða í rekstrinum því það liggur fyrir að það verður að gera?

Ég myndi byrja á því að skera verulega niður kostnaðinn við íþróttadeildina (þar fauk möguleikinn á stöðunni!).

Hvernig fannst þér staðið að uppsögnunum? Ef þú hefðir þurft að vera með niðurskurðarhnífinn á lofti, hvar hefðir þú tekið til hendinni innan stofnunarinnar?

Uppsagnirnar voru harmsaga … en viljið þið að ég  telji upp alla þá sem ég hefði látið fara? Á að jarða möguleika manns á vel launaðri innivinnu endanlega?

Hvernig á að laða unga hlustendur að Rás 1 og 2?

Af hverju á að laða fleiri unga hlustendur sérstaklega að Rás 1og 2? Ég myndi allavega ekki setja það efst á verkefnalistann.

Í dag þegar dagskrárefni er aðgengilegt á svo ólíkum miðlum sem raun ber vitni, hvaða áherslur á að leggja í dagskrárgerð hjá sjónvarpsarmi RÚV til þess að búa til efni sem hefur aðdráttarafl og ekki er aðgengilegt annars staðar og skapa þannig eftirspurn og sérstöðu?

Svar mitt felst eiginlega í spurningunni þ.e.a.s. hlutverk RÚV er fyrst og fremst það að búa til íslenskt efni sem ekki er aðgengilegt annars staðar. Þannig dagskrá skapar eftirspurn og sérstöðu og verður aðdráttarafl þessa miðils.

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283