Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ljósbrá

$
0
0

Ástbjört Viðja nemandi í 10. bekk í Öldutúnsskóla skrifar:

Ég mun aldrei gleyma þér, hvíslaði ég á meðan augun fylltust af tárum, og hugurinn af myndum, hlátri og minningum.

Það er eitthvað sérstakt við tilfinninguna þegar maður missir vin.

Ég er ekki að tala um þegar leiðir skilja og sambandið minnkar, heldur þegar manni eru færðar fréttir, svo þungbærar að það er eins og þúsund tonna steini hafi verið hent ofan á mann.

Fyrst kemur þetta sjokk og maður trúir ekki að þetta hafi í alvöru skeð, en svo kemur sársaukinn og maður finnur eins og hvert einasta bein í líkamanum mölbrotni.

Þó að þú hafir farið svona frá okkur, þrátt fyrir öll tárin og sorgina sem fylgdi dauða þínum þá er gott að vita til þess að þú fékkst loksins hvíld og að þér líði betur.

Þú hafðir frábær áhrif á líf margra, miklu fleiri en þig grunar og fyrir það er ég ævinlega þakklát – að hafa notið þeirra forréttindi að hafa kynnst þér.

Það var gott að hitta alla aftur í jarðarförinni, en alls ekki undir þessum kringumstæðum.

Mér finnst sárt hve margir gera lítið úr þunglyndi, sjúkdómi sem hefur kostað allt of marga lífið.

Að mínu mati er þunglyndi einn banvænasti sjúkdómur sem til er og þessvegna finnst mér að við ættum að hlúa betur að veika fólkinu okkar. Þessi sjúkdómur getur kostað fólk vinnuna, skólann, vinina, fjölskylduna og eins og ég sagði áðan, allt of marga lífið sjálft.

Umræðan um geðsjúkdóma er af skornum skammti. Við lesum kannski um þá en höfum í raun enga þekkingu um þá nema við sjálf séum veik eða einhver nákominn okkur.

Við þurfum að bæta kerfið hérna á Íslandi hvað varðar alla geðsjúkdóma.

Hvers vegna er það ásættanlegt að hringja sig inn veikan vegna flensu en ekki þegar maður er mjög veikur andlega?

Enn í dag eru fordómar gagnvart geðsjúkdómum, mikið litið niður á þá sem eru svona veikir og enginn skilningur á þessum málum.

Sjálfsvíg ungs fólks eru að verða sífellt algengari, hvers vegna er það og afhverju er ekki fjallað meira um þetta?

Fólk á meiri samskipti við símann sinn heldur en við manneskjuna við hliðina á þeim, sem leiðir til þess að fleiri finna fyrir einmannaleika myndi ég ætla.

Það er alveg ótrúlegt hvað eitt bros eða hrós getur breytt miklu fyrir manneskju.

Þú gladdir alla og hafðir eitt yndislegasta bros og mest smitandi hlátur sem ég hef kynnst á lífsleiðinni og mér finnst að aðrir ættu að taka þig til fyrirmyndar.

Verum dugleg að brosa og hrósa náunganum því ég er viss um að það myndi fækka sjálfsvígum. Samvera og samskipti skipta miklu máli.

Hlakka til að sjá þig aftur þar sem kærleikurinn og ljósið ríkir, þú átt alltaf stóran stað í hjarta okkar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283