Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ólöf birtir reglur um valdbeitingu lögreglumanna og landhelgisgæslumanna

$
0
0

Fréttatilkynning af vef innanríkisráðuneytisins

„Ólöf Nordal innanríkisráðherra hefur ákveðið að birta skuli reglur um valdbeitingu lögreglumanna og meðferð og notkun valdbeitingartækja og vopna sem þáverandi dómsmálaráðherra setti 22. febrúar 1999.

Innanríkisráðherra hefur jafnframt ákveðið að birta reglur um valdbeitingu handhafa lögregluvalds hjá Landhelgisgæslu Íslands og meðferð og notkun valdbeitingartækja og vopna sem þáverandi dómsmálaráðherra setti 6. júlí 2007.

Reglurnar munu birtast á næstunni í Stjórnartíðindum. Þær birtast hér eins og fyrrverandi ráðherra samþykkti þær og hefur þeim í engu verið breytt.“

Reglur um valdbeitingu lögreglumanna er hægt að lesa hér. Reglur-um-valdbeitingu-logreglumanna

Hér eru reglur þær er tengjast valdbeitingar- og vopna heimildum landhelgisgæslunnar. Reglur-um-valdbeitingu-handhafa-logregluvalds-hja-Landhelgisgaeslu-Islands-og-medferd-og-notkun-valdbeitingartaekja-og-vopna-f


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283