Indriði H. Þorláksson fyrrum ríkisskattstjóri skrifar. Birt með leyfi höfundar.
Tvennt veldur því að grein um eignarhald á íslenskum fyrirtækjum og flutning á fé frá Íslandi til útlanda aðallega skattaparadísa, sem ég birti á blogg.is snemma árs 2008 kemur nú upp í hugann. Hið fyrra er að í viðtali Egils Helgasonar við Stefán Ólafsson prófessor kom fram hjá þeim síðarnefnda að ein rökin fyrir auðlegðarskatti séu að með honum nái samfélagið til sín einhverjum hluta af þeim gróða hjá einstaklingum sem varð til við eignatilfærslur á bóluárunum og í hruninu. Þetta sjónarmið hefur áður komið fram og á fullan rétt á sér.
Síðara atriðið sem minnir mig á þessa gömlu grein eru fréttir um ómöguleikann á kaupum á upplýsingum um eignir Íslendinga í erlendum skattaskjólum. Hvaða eignir ætli sé um að ræða?
Að stofna fyrirtæki erlendis og að fela því eignarhald á íslenskum félögum opnar leið til að flytja fé skattfrjálst eða lítið skattað úr landi hvort sem var með arðgreiðslum eða með sölu á eignarhlutum og endurfjárfestingu í erlendu félagi. Mikill (froðu)gróði var í íslenskum fyrirtækjum einkum fjármálafyrirtækjum á árunum fyrir hrun, arðgreiðslur gífurlegar og hlutabréfavelta lífleg.
Hvað varð um þennan arð og söluhagnaðinn? Ekki fannst hann í gjaldþrota fjármálastofnunum og eignarhaldsfélögum.
Þennan kafla hrunsögunnar vantar og þær skýringar sem hann gæti gefið á þeim atburðum sem hér urðu í hruninu og reyndar eftir það líka.
Upplýsingar um eign Íslendinga í skattaskjólum eru mikilvægar ekki bara vegna hugsanlegra skatttekna og jafnræðis fyrir lögum heldur einnig til að upplýsa almenning um hvað raunverulega fór fram í aðdraganda hrunsins og ekki síst til að læra af því. Þær skattareglur sem að framan greinir eru enn í gildi og fjárflutningar sem þessir gætu verið hafnir á ný ef ekki væru gjaldeyrishöft.
Ágrip af framangreindri grein er að finna á vefsíðu þessari https://indridith.wordpress.com/skattar/skattar-almennt/eignarhald-a-islenskum-fyrirtaekjum-hvert-rennur-hagnadur-theirra-og-skattar-agrip/ og þar er hægt að sækja greinina í heild á pdf skjali Eignarhald á íslenskum fyrirtækjum
Indriði H. Þorláksson er menntaður hagfræðingur. Hann starfaði lengst af í menntamálaráðuneytinu og fjármálaráðuneytinu og sem Ríkisskattstjóri.