Í íslensku eru til nokkur orð þar sem neikvæðri hegðun eða persónueinkennum er líkt við poka eða ílát. Hér eru nokkur dæmi: væluskjóða, grenjuskjóða, klöguskjóða, Mér finnst áhugavert að þessi orð fela í sér þá hugmynd að neikvæð hegðun sé ekki karaktereinkenni heldur kannski frekar eins og manneskjan sé hýsill fyrir frekju, fýlu og grenjur? (eða bara eina grenj.) Eru til fleiri orð af þessu tagi?
sorabelgur, ólátabelgur, kjánabelgur, vindbelgur, (einnig nautnabelgur sem er nú kannski ekki beint neikvætt)
frekjudós, frekjudolla, frekjudallur, frekjutuðra,
fýlupoki,
kjaftaskur,
bullustampur,
drullusokkur(Áður birt á Eyjunni 2013)
↧
Skjóða, poki, dós
↧