Sjón skrifar:
Yfirlýsing PEN-félaganna á Norðurlöndum vegna árásarinnar í Kaupmannahöfn
Skotárásin á laugardagsfundinn í Kaupmannahöfn, þar sem fólk var samankomið
til þess að ræða tjáningarfrelsið andspænis guðlastinu, og sú sem í framhaldinu var
framin við samkunduhús Gyðinga í borginni, eru hrollvekjandi áminning um að
einnig í hinum opnu samfélögum Norðurlanda steðjar ógn að þeim grunngildum
sem taka til frjálsra skoðanaskipta í veraldlegu samfélagi. Við fordæmum þessa
grófu tilraun til kúgunar og hörmum mannslífin sem hún kostaði.
Það að atburðirnir eigi sér stað á 25 ára afmæli dauðadóms íranska klerkaveldisins
yfir bresk-indverska rithöfundinum Salman Rushdie undirstrikar að tjáningarfrelsið
nær yfir landamæri og gengur þvert á menningarheima. Í dag eru allt, allt, of mörg
samfélög þar sem rithöfundar, listamenn og skopmyndateiknarar eru beittir
ritskoðun og ofbeldi. Norrænu PEN félögin munu halda áfram, jafnt heima sem að
heiman, að berjast fyrir rétti þeirra til að tjá sig án þess að vera ofsóttir.
Virðing fyrir tjáningarfrelsinu og hvatning til beittrar samfélagsgagnrýni í ólíkum
miðlum á sér langa sögu á Norðurlöndum. Nýleg alþjóðleg úttekt setti Danmörku í
efstu sæti lista yfir frjáls samfélög. Við munum ekki láta öfl umburðarleysis
eyðileggja það með sínum grófu brögðum.
Dansk PEN
Norsk P.E.N.
PEN á Íslandi
Suomen PEN
Svenska P.E.N.