Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Vigdís Finnbogadóttir er fyrsti gestur Hringbrautar

$
0
0

Hringbraut er ný íslensk sjónvarpsstöð sem hefur göngu sína 18. febrúar, en hún mun bjóða upp á upplýsandi, fróðlega og á stundum ögrandi sjónvarpsþætti um hitamálin heima og erlendis. Þáttastjórnendur á Hringbraut hafa allir ríka reynslu af fjölmiðlum og og munu jafn margar konur og karlar halda þar um taumana. Leiðarljós stöðvarinnar er mannvirðing, umburðarlyndi og jafnrétti en sérstök áhersla verður lögð á jafnt kynjahlutfall viðmælenda í öllum þáttum hennar. Fyrsti gestur Hringbrautar í kvöld er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands.

Meðal þáttastjórnenda Hringbrautar á fyrstu mánuðum starfseminnar verða Björk Eiðsdóttir, Hulda Bjarnadóttir, Karl Ágúst Úlfsson, Páll Magnússon, Rakel Garðarsdóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Sólveig Ólafsdóttir og Sigurður K. Kolbeinsson.

Efni helstu þátta Hringbrautar mun taka á málefnum líðandi stundar, jafnt á stjórnmálum, neytendamálum og helstu fréttamálum, en þess utan býður stöðin upp á líflega og áhugaverða viðtalsþætti, fréttaskýringar, mannlífsþætti og ögrandi umræðu um viðkvæm samfélagsmál.

Allt efni Hringbrautar er í opinni dagskrá og sent út í háskerpu á rásum 7 hjá Símanum, 25 hjá Vodafone og 35 hjá Digital Ísland.

Fyrstu vikurnar sendir Hringbraut út nýtt íslensk efni frá klukkan 21.00 á kvöldin til 22.00, en smám saman verður dagskrárgerð aukin og er stefnt að því að innan þriggja mánaða verði boðið upp á tveggja klukkustunda nýtt íslensk efni á hverju virku kvöldi vikunnar, frá klukkan 21.00 til 23.00 sem svo verður endursýnt til klukkan 01.00 um nóttina og á völdum tímum daginn eftir.

Dagskrárstjóri Hringbrautar er Sigmundur Ernir Rúnarsson og framkvæmdastjóri er Guðmundur Örn Jóhannsson sem jafnframt er aðaleigandi hennar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283