Leikarinn Sandor Sturbl sem leikur Pétur Pan kom meðleikurum sínum í opna skjöldu þegar hann bað mótleikkonu sinnar á sviði Hydro leikhússins í Glasgow fyrir framan fullan sal áhorfenda. Leikkonan unga sem fer með hlutverk Vöndu brast í grát og játaðist honum á staðnum. Ævintýrin gerast enn og Pétur og Vanda lifa vonandi hamingjusöm til æviloka.