Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

„Brasilískir“ bossar geta verið banvænir

$
0
0

Bandarískir læknar hafa af því áhyggjur að konur eru í auknu mæli að fá sér fyllingar í rasskinnarnar til að öðlast  svokallaða „brasilíska“ bossa. Oft og tíðum er þetta gert á ólöglegum stofum og efnin sem notuð eru eru alls ekki ætluð til þessa og geta valdið veikindum og hafa jafnvel dregið konur til dauða. Dæmi eru um að olía sem jafnan er notuð á bíla hafi verið notuð í þessar fyllingar.

Það er bókstaflega óskiljanlegt að konur skuli vera reiðubúnar til að taka slíka áhættu sem raun ber vitni.  Það er mikil sýkingahætta sem fylgir rassfyllingum sem þessum og töluverð brögð að því að rassaítroðslan gefi sig og fari bara að leka. Ekki geðslegt. Hver vill vera með svona útblásinn rass?


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283