Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Merkilegt starf Snarrótarinnar – Fyrirlestur Damon Barrett

$
0
0

Snarrótin samtök um borgaraleg réttindi stóðu fyrir heimsókn Damon Barrett á dögunum en Damon er mannréttindalögfræðingur og hélt hann fyrirlestur í Háskóla Íslands undir yfirskriftinni „Mannréttindabrot í skugga fíkniefnastríðsins“. Kvennablaðið birtir fyrirlesturinn hér í heild sinni.

Damon  Barrett var í góðu viðtali við Heimi Má Pétursson á Stöð 2 sem hægt er að sjá hér.

Ragnar Hansson, fulltrúi í Mannréttindaráði Reykjavíkurborgar, tók langt og ítarlegt „podcast“ viðtal við Damon Barrett, 20. febrúar 2015 fyrir Áhugavarpið sem hægt er að hlusta á hér að neðan.

Snarrótin er ungt grasrótarfélag sem hefur haft veg og vanda af heimsóknum fremstu talsmanna afnáms refsistefnunnar svo sem eins og Dr. Ethan Nadelmann og dr. David Nutt sem eru helstu sérfæðingar í stefnumótun í vímuefnamálum í heiminum í dag.  Fyrirlestur dr. David Nutt má finna hér og fyrirlestur dr. Ethan Nadelmenn er hér.  

Heimsóknir fleiri góðra gesta eru í undirbúningi hjá Snarrótinni, meðal annars tveggja fulltrúa frá The Global Commission on Drug Policy, sem gjarnan er kennd við Kofi Annan, fyrrverandi aðalritara Sameinuðu þjóðanna.

Formaður Snarrótarinnar Pétur Þorsteinsson var  í viðtali við „Mannlega þáttinn“ á Rás 1, í gær, mánudaginn 23. febrúar 2015. Hér má hlýða á það viðtal.

Eins og fram kom í lok viðtalsins er Snarrótin fjárvana um þessar mundir og framlög í baráttusjóð samtakanna eru sérlega kærkomin.  Mikilvægt er að styðja við bakið á því metnaðarfulla starfi sem Snarrótin vinnur samfélaginu til handa og vill því Kvennablaðið biðla til lesenda sinna að styðja samtökin með fjárframlögum.

Reikningsnúmer og kennitala Snarrótarinnar eru:

Kennitala: 511004-3220
Banki: 0323-26-011004


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283