Yfirlýsing frá Sigríði Björk Guðjónsdóttur, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu um meint lögbrot hennar er fjölmiðlar greindu frá í dag.
Vegna úrskurðar Persónuverndar í máli nr. 2014/1779 tel ég rétt að árétta eftirfarandi:
Í niðurstöðu Persónuverndar kemur ekki fram að ég hafi gerst brotleg við lög þegar ég varð við ósk aðstoðarmanns Innanríkisráðherra um að senda honum skýrsludrög um málefni hælisleitanda þann 20. nóvember 2013. Persónuvernd kemst hins vegar að þeirri niðurstöðu að miðlun skýrsludraganna hafi ekki stuðst við viðhlítandi heimild þar sem hún var ekki á meðal gagna í því máli hælisleitandans sem til meðferðar var í ráðuneytinu. Það gat ég sem sendandi hvorki vitað né tryggt.
Persónuvernd segir í úrskurði sínum „að móttaka aðstoðarmannsins á skýrsludrögunum frá Lögreglunni á Suðurnesjum hafi talist liður í starfsemi ráðuneytisins og það því ábyrgðaraðili að þeirri vinnslu sem í móttöku draganna fólst“. Það var því ráðuneytisins að tryggja að rétt yrði farið með skjalið. Það var mat lögreglunnar á Suðurnesjum að lagaleg heimild væri til staðar fyrir miðlun skýrsludraganna.
Af niðurstöðu Persónuverndar verður einnig ráðið að þörf er á að yfirfara innan stjórnsýslunnar verkferla vegna krafna um upplýsingaöryggi og öryggi við miðlun persónuupplýsinga.