Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Siðlaus og ekki sendibréfsfær

$
0
0

Framferði Gunnars Braga Sveinssonar ráðherrans sem skilur ekki eigin sendibréf er túlkað af ýmsum þessa dagana. Vilhjálmur Bjarnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði á Hringbraut að ákvörðun utanríkisráðherra um að slíta viðræðum við ESB án aðkomu Alþingis megi líkja við siðrof.

Screenshot 2015-03-17 11.28.47

Orðið þýðir lögleysa eða siðleysi og á Vísindavefnum segir svo:

Oftast er talað er um siðrof þegar siðferðileg viðmið og almennt viðurkennd gildi í samfélagi víkja fyrir siðleysi og upplausn eða sem getuleysi til þess að uppfylla siðferðisstaðla samfélagsins.

Þessi forkastanlega framkoma utanríkisráðherra hefur orðið mörgum yrkisefni á síðustu dögum og hér hefur einhver tekið sig til og textað erlent myndband og útkoman er vægast sagt hlægileg!

Í þessu myndbandi kveður við alvarlegri og þyngri tón. það heitir Í skjóli loforðs.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283