Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Páskavínið

$
0
0

Í tilefni páskanna verður hér fjallað um vínin frá ítalska vínrisanum Pasqua en nafnið þýðir einmitt páskar á íslensku. Pasqua hefur fengist í hillum Vínbúðanna í mörg ár og lengi verið með mest seldu ítölsku vínunum á Íslandi. Það er heldur ekki að undra því verðið á þessum vínum þykja verulega góð miðað við gæði.

Screen shot 2015-03-24 at 13.15.24

 

Veneto er vínhérað á Norðaustur-Ítalíu, eitt af þekktari svæðum landsins, og er í nágrenni við borg ástarinnar, Verona. Veneto er þekktast fyrir þrjár víntegundir; rauðvín frá Valpolicella (sem margir Íslendingar þekkja), hvítvín frá Soave og ekki síst fyrir háklassavínin Amarone.

kona

 

Pasqua er stærsta fjölskyldurekna víngerðin á Ítalíu og hefur þróað vín undir sama nafni í meira en 100 ár sem mörg hver hafa unnið til alþjóðlegra verðlauna. Pasqua-fjölskyldan hefur lengi verið í fremstu röð víngerðarfólks frá þessu svæði bæði á Ítalíu og á alþjóðlegum vettvangi enda ávallt framleitt öll sín vín með mikilli ástríðu. Kynslóð fram af kynslóð hefur Pasqua haft í heiðri hefðir og gæði en ávallt leitast við að fara ótroðnar slóðir og notast við nýjustu hátækni. Með þetta að vopni og ekki síst ástríðu fyrir ítölskum vínum hefur Pasqua tekist að bera hróður ítalskrar víngerðar út um allan heim.

Á Íslandi eru til mörg vín frá Pasqua og ekki færri en 13 mismunandi vín fást nú í Vínbúðum. Við ætlum hér að fjalla örlítið um nokkur þeirra.
1,5 ltr Magnum flöskurnar frá Pasqua

Magnum-flöskurnar frá Pasqua hafa verið gríðarlega vinsælar hjá landsmönnum og verið langsöluhæstu 1,5 l flöskurnar í Vínbúðunum um árabil. Fyrir utan gæðin og verðið er ástæðan vafalítið sú að það hentar afar vel að bjóða upp á slíkar flöskur í litlum eða stórum hópum enda hafa þessi vín mikið verið notuð í veislur. Í Vínbúðunum fást 5 mismunandi tegundir af 1,5 l vínum og þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.

Tvær vinsælustu tegundirnar eru:

Pasqua Pinot Grigio 1,5 ltr. Kr. 3.355

pasqua PG 1,5

 

Pinot grigio-þrúgan hefur slegið í gegn úti um allan heim og þetta flotta hvítvín er dæmigert fyrir hana. Ljós sítrónugulur litur, blómlegt í nefi og afar ferskt á tungunni. Ávaxtaríkt í bragði og þarna má finna perur og epli og jafnvel stjörnuávöxt. Flott með alls kyns léttum foréttum og fiski og frábært bara eitt sér.

Pasqua Merlot 1,5 ltr. Kr. 2.861

pasqua merlot 1,5

Töluvert bragðmikið vín með lykt af sólberjum. Plómum og smá kryddi. Afar ávaxtaríkt í bragði með mildum tannín-tónum. Rauð bera og jafnvel plóma.

Einnig má finna í Vínbúðunum 1,5 l Pasqua Soave hvítvín og rauðvínin Pasqua Sangiovese og Pasqua Montepulciano d´Abruzzo.
Pasqua í 75 cl flöskum

Til eru 3 gerðir af Pasqua Le Colezione línunni í 75 cl flöskum á afar flottu verði en það eru:

Pasqua Chardonnay le Collezione kr. 1.679

pasqua chard

Þetta vín fékk frábæra dóma hjá Þorra Hrings um daginn eða 3,5 stjörnur af 5 sem hlýtur að teljast afar gott á þessu verði. Hér kemur lýsingin frá Þorra: „Þessi Chardonnay er ættaður frá Púglíu og er ljós-strágylltur að lit með óeikaða og blómlega angan af sætum sítrus, melónu, ferskju, mandarínu og peru. Þetta er meðalopin og býsna frískleg angan, en ekki er hún sérstæð.
Í munni er það með meðalfyllingu, góða sýru og fremur einfalt bragð sem mætti gjarnan endast lengur því ekki er það slæmt meðan það varir. Þarna er sítrus, pera, ferskja, melóna og greipaldin. Ungt, einfalt og vel gert hvítvín en alveg útilokað að greina hvaðan úr veröldinni það kemur. Hafið með hversdagslegum fiskréttum, ljósu fuglakjöti, salötum, skelfiski og léttu pasta.
Verð kr. 1.679.- Mjög góð kaup.“

Pasqua Pinot Grigio le Collezione kr. 1.774 og Pasqua Merlot le Collezione kr. 1.532.

pasqua PG

pasqua merlot

Þarna eru á ferðinni sömu vín og í magnum-flöskunum.


Ástríðuvínið Famiglia Pasqua Passimento

passimento

Að endingu ætlum við að fjalla aðeins um rollsinn í þessum vínum, Apassimento-vínið frá Pasqua. Þetta er frábært vín gert á svipaðan hátt og Amarone-vínin þ.e. þrúgurnar eru þurrkaðar. Vínið hefur fengið afar góða dóma hér á landi og t.d. gaf Þorri Hrings víninu 4 stjörnur af 5 og taldi þetta afar góð kaup. Það merkilegasta við þá einkunnagjöf er sú staðreynd að eftir þessa góðu umfjöllun lækkaði verðið á víninu úr 2.650 krónur niður í 2.272 kr og hlýtur þá að teljast stórkostleg kaup á því verði í dag. Látum Þorra eftir að lýsa víninu:
„Það hefur meðaldjúpan rúbínrauðan lit og dimma og dálítið sprittaða angan af sultuðum dökkum og rauðum berjum (aðallega svörtum kirsuberjum), sætu píputóbaki, kryddi, jörð og þurrkuðum ávöxtum. Einnig er þarna vottur af sveitalegum húsdýrailm sem bara gerir það skemmtilegra. 

Í munni er það merkilega þurrt miðað við að það er „Apassimento“, hefur góða sýru, mjúk tannín og fínasta jafnvægi sem er sannarlega ekki alltaf upp á borðinu þegar Apassimento og Amarone-vín eiga í hlut. Það hefur keim af þurrkuðum ávöxtum, sultu úr svörtum kirsuberjum, kryddbrauði og beiskum möndlum. Hafið með hörðum ostum, rauðu kjöti og jafnvel villibráð.

 Mjög góð kaup.“

Af nógu er að taka þegar Pasqua er annars vegar og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi fyrir páskana.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283