Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Rick Astley með tónleika í Hörpu – Langar þig að fara?

$
0
0

Einn fremsti söngvari Breta á níunda áratugnum, Rick Astley hefur ákveðið að koma til Íslands og skemmta landanum með tónleikum í Eldborgarsal Hörpu þann 1. maí næstkomandi.Rick Astley lagði heiminn að fótum sér árið 1987 með laginu “Never gonna give you up” sem fór beinustu leið í fyrsta sæti vinsældalista í 25 löndum samtímis.

Rick Astley er eini karlkyns sóló listamaðurinn sem hefur átt átta lög á top 10 í Bretlandi. Þegar Rick Astley dró sig í hlé árið 1993 af persónulegum ástæðum hafði hann selt yfir 40 milljón plötur á heimsvísu.

Rick Astley ákvað að snúa sér aftur að listamannsferlinum árið 2007. Síðan þá hefur hann gefið út tvær plötur, sem fengið hafa afbragðs dóma gagnrýnenda, auk þess að koma fram á tónleikum en þó helst ekki í mikilli fjarlægð frá Englandi þar sem honum mun vera illa við flugvélar.

Kvennablaðið gefur tveimur lesendum miða fyrir tvo á tónleikana og nú er um að gera að læka og láta vita í athugasemdakerfinu ef þú vilt eiga kost á því að fá frímiða á tónleikana.

Rick Astley mun koma fram í Eldborgarsal Hörpu þann 1. Maí. Miðasala fer fram í Hörpu, á harpa.is og midi.is


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283