Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

„Ég þarf ekki að bera á mér brjóstin til þess að fá það staðfest“

$
0
0

Fatahönnuðurinn og listakonan Ýr Þrastardóttir skrifar á Facebook síðu sinni:

„Ég er kona og ég er femínisti. Jafnréttissinnuð og sjálfstæð.
Ég þarf ekki að bera á mér brjóstin til þess að fá það staðfest.

Ég er líka maður. Ég hugsa eins og flestir og vil láta meta mig af þeim verðleikum sem ég hef og vil mæta karlmönnum á jafnréttisgrundvelli.

Ég berst fyrir því að konur fái sömu tækifæri og karlmenn. Ég berst fyrir því að fá að starfa við mitt fag í annars mjög karllægum heimi.

Ég bý til sterkar kvenfyrirmyndir í fullum klæðum.

Það hefur aldrei verið bannað að bera á sér brjóstin, og það er bara frábært að sjá svona margar konur taka undir fyrir málstaðinn, sjálf kýs ég að vinna að mínu jafnrétti með öðrum hætti og er vonandi fyrirmynd fyrir einhverjar ungar konur.“

Screenshot 2015-03-28 12.21.48

 

Ljósmynd af Ýr er eftir Sögu Sig.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283