Hildur Guðbjörnsdóttir skrifaði grein á vefritið Knuz.is í gær, sem gagnrýndi harðlega grein sem Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifaði á Kvennablaðið í fyrradag. Undirrituð skrifaði athugasemd við grein Hildar sem ég birti einnig hér að beiðni ritstjórnar. Að gefnu tilefni vil ég taka það fram að skoðanir þær sem fram koma í athugasemdinni lýsa ekki endilega afstöðu Kvennablaðsins heldur eru þær alfarið mínar eigin.
Sæl Hildur,
Sem kona, feministi og blaðakona hjá Kvennablaðinu finnst mér ég þurfa að leggja hér nokkur orð í belg. Gein þín inniheldur á köflum fullgilda gagnrýni á skrif ritstjóra Kvennablaðsins, Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur, sem þér reyndar láist að nefna einu sinni á nafn í textanum.
Ég verð hins vegar að gera athugasemd við niðurlagið á greininni þinni þar sem þú segir:
„Að lokum má benda á að það er ekki bara þessi pistill, heldur afstaða Kvennablaðsins til kvenfrelsis í heild sinni, sem er í algjörri mótsögn við sjálfa sig. Kvennablaðið hefur áður sakað þau sem berjast gegn vændi um forræðishyggju og hefur birt pistla til stuðnings „frelsi“ kvenna til að selja líkama sinn. Núna vill Kvennablaðið hins vegar hafa vit fyrir stelpum sem vilja sýna á sér geirvörturnar, en eru ekki að selja sig karlmönnum? Þannig að frelsi kvenna til að ráða yfir eigin líkama er í lagi þegar þær eru að selja líkamann eða nektina til að þjónusta karlmenn, en annars ekki? Þegar þær gera það fyrir sjálfa sig og engan annan, þá ber okkur skyndilega að hafa vit fyrir þeim, í anda forræðishyggju?“
Steinunn Ólína er vissulega ritstjóri Kvennablaðsins en það gerir hana ekki að „Kvennablaðinu“ eins og þú stillir henni upp í greininni. Steinunn skrifaði ritstjórnargrein þar sem hún lýsti sinni skoðun á #FreeTheNipple herferðinni sem tröllriðið hefur netheimum undanfarna daga.
Steinunn Ólína hefur ekki skrifað eina einustu grein um vændi, hún hefur engan ásakað um forræðishyggju í því samhengi. Steinunn hefur vissulega birt pistla til stuðnings frelsi kvenna til þess að selja líkama sinn. En það er mikil einföldun og í raun fáránlegir þöggunartilburðir að ætla að eigna Steinunni skoðanir og skrif annarra.
Það eru þær Þórdís Sveinsdóttir, fjölmiðlafræðingur og doktor í félagsfræði og pistlahöfundurinn Eva Hauksdóttir sem hafa skrifað í anda þeirrar afstöðu sem þú eignar Kvennablaðinu í heild. Ég veit ekki betur en að þær greinar innihaldi fjölda heimilda og rökfærslna fyrir þeirri persónulegu afstöðu höfunda að barátta fyrir refsivæðingu vændis án breiðrar aðkomu vændiskvennanna sjálfra feli í sér forræðishyggju. Það gerir afstöðu þeirra ekki að afstöðu Kvennablaðsins. Enda veit ég ekki betur en að Kvennablaðið hafi einnig birt andsvör við þeim greinum (t.d. grein eftir Elísabetu Ýr Atladóttur).
Ég skora á þig að slá inn leitarorðin „femínismi“ , „konur“ og „vændi“ á vef Kvennablaðsins til þess að kynna þér þau fjölbreyttu sjónarmið sem birtast á Kvennablaðinu um þessi málefni.
Ég geri athugasemd við það að með ofangreindum orðum þínum gerir þú skoðun Steinunnar að minni skoðun, og allra þeirra sem hafa fengið birtar eftir sig greinar á Kvennablaðinu. Ég geri athugasemd við það að þú smættir það fjölbreytta og víðtæka efni sem birst hefur á Kvennablaðinu um málefni kvenna niður í „birtingamynd feðraveldisins“ og segir „afstöðu blaðsins til kvenfrelsis í heild sinni í algjörri mótsögn við sjálfa sig“ vegna þess að ritstjóri Kvennablaðsins lýsti sinni skoðun á berbrystingum.