Á alþingi hefur verið að rætt að flýta og seinka klukkunni nokkrum sinnum á sl. árum. Nú hefur formaður fjárlaganefndar Vigdís Hauksdóttir lagt fram viðbótartillögu um að fjölga vikudögunum upp í átta. Hún telur að þetta muni hafa í för með sér mikla hagræðingu fyrir atvinnulífið og þjóðarbúið.
„Enda þótt þessi nýi vikudagur verði sá áttundi í röðinni, er samt gert ráð fyrir að hann verði í raun sá sjötti, þ.e. á eftir föstudegi, á undan laugardegi – til að koma til móts við launþega …“ sagði Vigdís í fréttum RUV í morgun.
Aðspurð sagðist hún ekki vera með það á hreinu hvað áttundi dagur vikunnar gæti heitið en hún hefði rætt þetta við samstarfskonur sínar og Sveinbjörg Birna hefði komið með hugmynd sem ekki væri algalin og yrði þá vikan svona:
„mánudagur þriðjudagur miðvikudagur fimmtudagur föstudagur og fyrstidagur – og síðan laugardagur og sunnudagur … nefndur fyrstidagur því hann er sá fyrsti í fjölgun vikudaganna, sem fyrirhugað er að fjölga enn frekar ef þetta gefst vel…“