Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Heilbrigðisreglur úr Kvennablaðinu 1899

$
0
0

1. Sólskin og hreint loft eru nauðsynleg
heilsuskilyrði. Láttu því streyma nóg
inn af því hvorutveggja bæði í dagstofu þinni og
svefnherbergi.

2. Þú herðir bezt likama þinn með því
að þvo þér daglega úr köldu vatni. Ef
þú getur, ættir þú að fá þér heitt bað einu
sinni i viku.

3. Ef þú baðar þig úti í köldu vatni á
sumrin, þá áttu að velja þér stað, þar sem
sólin skín sem bezt á, og vera ekki yfir
10 mínútur niðri í vatninu. Nuddaðu hörundið
svo vel með snarpri þurku, og gaktu
hratt spottakorn til að hita þér. Ef það
er logn og sólarhiti, þá er gott að líkaminn
verði stundarkorn fyrir áhrifum loftsins
og sólarinnar.

4. Hreif þú þig daglega sem mest úti.

5. Gættu vel að því, að ofkæla ekki
einstöku parta líkamans við súg, einkum
ef þér er mjög heitt. Forðastu yfir höfuð
sem mest mjög miklar hitabreytingar.

6. Hafðu aldrei heitara inni hjá þér
en 15°. Vel þér sæti, þar sem hvorki
ná til þín hitastraumarnir úr ofninum, eða
súgur frá gluggum eða dyrum. Til þess
loftið verði ekki of þurt, er bezt að láta
vatnsskál vera ofan á ofninum, svo vatnið
gufi upp, en sjóði ekki.

7. Klæddu þig ekki of mikið. Hafðu
eitthvað létt á höfðinu. Brúkaðu ekki hálsklút.
Forðastu þröngva hálskraga og of
stíf skyrtubrjóst. Reyrðu enga líkamshluta.
fast, t. d. með sokkaböndum, belti eða
lífstykki.

8. Láttu skóna falla að fætinum, og
vera með flata og breiða hæla.

9. Sittu ekki í votum fötum, sokkum
eða skóm.

10. Vertu hófsamur í mat og drykk.
Eorðastu þunga fæðu, sem ilt er að melta.
Vendu þig á að eta einfaldan mat á vissnm
tímum, þrisvar á dag. Neyttu hvorki
matar né drykkjar, sem er of.kaldur eða
of heitur. Et þú seint og tygðu vel. Et
hvorki hrátt kjöt né óþroskaða ávexti.
Vertu aðgætinn með að neyta kaffls, tóbaks
og áfengra drykkja.

11. Lestu ekki á meðan þú etur. Byrjaðu
ekki á andlegum störfum rétt á eftir
máltíð.

12. Háttaðu snemma, og farðu snemma
á fætur. Spill þú ekki nætursvefni þínum
með andlegri eða líkamlegri áreynslu, rétt
undir svefninn.

 

Grein úr Kvennablaðinu 5. árgangi 1899.

Málverk eftir Degas.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283