Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Finnsku lestarsokkarnir – smábarnasokkar

$
0
0

Saga sokkanna

Þessi uppskrift kemur frá Finnlandi. Upprunalegu sokkana varðveitir Terttu Latvala. Mamma hennar Kerttu var á lestarferðalagi frá Vaasa með 2 mánaða gamalt stúlkubarn sitt Tuulu. Þetta var í byrjun árs 1940 eða á stríðtímanum. Lestin stoppaði óvænt því það var búið að sprengja upp lestarteinana. Beint á móti henni í lestinni sat fullorðin kona, handavinnu-kennari á eftirlaunum. Henni þótti miður að barnið væri sokkalaust og tók til sinna ráða. Hún rakti upp hvíta handprjónaða ullarpeysu sem hún var í og prjónaði úr garninu sokka handa barninu á meðan á viðgerð lestarteinanna stóð.

Kerttu Latvala prjónaði nokkur hundruð pör af sams konar sokkum eftir upprunalegu sokkunum á meðan hún lifði. Alltaf varð til nýtt sokkapar þegar einhver í nærumhverfinu átti von á barni. Dóttir hennar Terttu Latvala hefur líka prjónað yfir 200 pör af sams konar sokkum. Sokkarnir eru ekki bara fallegir, heldur tolla þeir vel á fótum ungra barna.

Lestarsokkar

Lestarsokkarnir snertu marga

Haustið 2007 birtist sokkauppskriftin og sagan í blaði og þá fór hún eins og eldur um sinu og er núna að finna á ótal bloggsíðum í Finnlandi. Sagan hefur snert marga og þúsundir sokkapara hafa verið prjónaðir. M.a. hafa kvenfélög tekið sig til að prjónað par handa öllum nýfæddum börnum í þeirra héraði. Enda fátt notalegra en að eiga góða, hlýja sokka á litlu börnin.

Screenshot 2015-04-04 11.27.29

LESTARSOKKARNIR

GARN

1 x 50g af ARTESANO Alpaca 4-ply eða sambærilegu garn. Ef notað er grófara garn verða sokkarnir stærri.

PRJÓNAR

Sokkaprjónar nr. 2 1⁄2.

STÆRÐ

Sokkarnir passa á u.þ.b. 1 árs barn.

ORÐALYKILL

L = lykkja, lykkjur

umf = umferð

S = slétt lykkja

B = brugðin lykkja

úrt:2Ss = úrtaka: 2 lykkjur slétt saman

úrt:1Ó+1S+sty = úrtaka:1 lykkja óprjónuð, 1 lykkja slétt, óprjónuðu lykkjunni steypt yfir þá prjónuðu

SOKKAR

Fitjið upp 40L og deilið jafnt á 4 prjóna (10L á prjón).
Prjónið 12 umf brugðninga; 2S+2B.
*Prjónið 4 umf B, 4 umf S, 4 umf B og 12 umf 2S+2B brugðninga*. Endurtakið frá *-*.

Hælstallur

Sameinið L á 1. og 4. prjóni fyrir hælinn. Prjónið hælstallinn fram og tilbaka sléttprjón (S á réttunni, B á röngunni) samtals 12 umf. Takið alltaf fyrstu L óprjónaða.

Hæltunga

Skiptið L hælstallsins í þrennt og setjið merki þannig að 6L verði í miðju og 7L til beggja hliða. Prjónið hæltunguna og byrjið frá réttu. Prjónið fyrst 7L hægra megin, næstu 5L af miðjunni (1L eftir að merki), takið næstu L óprjónaða, prjónið 1L (vinstra megin við merkið) og steypið óprjónuðu L yfir.

Snúið við. Takið 1. L óprjónaða (eins og prjóna eigi hana B), prjónið 4L B, prjónið næstu 2L B saman (sitt hvoru megin við merkið). Snúið við og haldið áfram að taka þannig úr þar til búið er að taka allar hliðar-L úr.

Prjónið upp 7L á vinstri hlið hælstallsins, prjónið ristar-L sem biðu, prjónið upp 7L á hægri hlið hælstallsins. Umf. byrjar á miðri hæltungu.

Sokkabolur

Prjónið sokkabolinn áfram þannig; *4 umf með 2. og 3. prjóni B (ristarprjónar) og allar aðrar L S (ilin), 4 umf allar L S*. Endurtakið frá *-* 2 sinnum í viðbót. Prjónið einni sinni í viðbót 4 umf með B L á ristinni og S á ilinni.

Úrtaka á tá

Takið úr í hverri umf með bandúrtöku þannig:

Á 1. og 3. prjóni er prjónað þar til 3L eru eftir, úrt:2Ss, 1S.
Á 2. og 4. prjóni er 1S, úrt:1Ó+1S+sty.
Þegar 4L eru eftir er slitið frá og spottinn þræddur tvisvar í gegnum L sem eftir eru.

Prjónið hinn sokkinn eins. Gangið frá endum og skolið úr sokkunum og leggið flata til þerris.

Þýtt úr finnsku af Guðrúnu Hannele hjá Storkinum. Uppskriftin er orðin að flökkuuppskrift í Finnlandi og má finna víða á bloggsíðum.

Góð ráð fyrir sokkaprjón

    • Fitjið upp laust svo fitin gefi vel eftir.
    • Haldið sömu prjónfestu alla sokkana.
    • Þegar sokkaprjónar eru notaðir vill fyrsta lykkja oft verða lausari. Hafið það í huga og prjónið hann þétt.
    • Veljið prjónastærð eftir ykkar eigin prjónfestu. Fínni prjónar = þéttara prjón/minni sokkar.
    • Sokkarnir endast betur ef þeir eru prjónaðir þétt.
    • Tvíbandaprjón eða mynsturprjón getur verið lausara eða fastara en sléttprjón. Gætið þess og skiptið um prjónastærð ef með þarf.

     

     

    Uppskriftin er þýdd úr finnsku. Uppskriftin er orðin að flökkuuppskrift í Finnlandi og má finna víða á bloggsíðum.

    Mynd efst í bloggi er héðan.


    Viewing all articles
    Browse latest Browse all 8283