Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Trufflan sem allir eru að tala um!

$
0
0

Á dögunum opnaði nýr veitingastaður á Hverfisgötu 20. Veitingastaðurinn heitir Tacobarinn og býður upp á ljúffengt taco í heimabökuðum skeljum ásamt fleiri smáréttum.

Himneskt Taco

Himneskt Taco

 

En það er eftirrétturinn á staðnum sem er til umræðu hér því hann er vægast sagt góður en hann heitir Tekílatruffla!  Ófáir borgarbúa hafa gætt sér á þessari snilld með gleðibros á vör. Kvennablaðið gat því ekki stillt sig um að fá uppskriftina hjá hinum brosmilda kokki staðarins Chase Steffens.

IMG_1467

Varúð! Hún lítur sakleysislega út en það er slegist um þessar elskur.

200 gr rjómaostur
250 gr flórsykur
250 gr dökkt súkkulaði (70%) (Bitter sweet)
1 tsk Dutch kakóduft (dökkt hreint kakóduft)
2 tsk vanilluduft eða dropar
6 cl gyllt tekíla
100 gr ristaðar möndlur, gróft malaðar
2 tsk kanill
1/2 tsp cayenne pipar
1/4 tsp sjávarsalt

Bræði súkkulaði og látið til hliðar. Hrærirð rjómaostinn þar til hann er orðinn mjúkur. Bætið kakói og sykri út í. Hrærið varlega súkkulaði, vanilu og tekíla saman við blönduna. Skafið hliðar og setjið blönduna í hreina skál og setjið í kæli  að lágmarki í 1 klst. Helst yfir nótt.

Blandið því næst möndlum, salti, kanil og cayenne pipar saman á disk.

Setjið á ykkur einnota hanska og berið olíu á þá til að auðvelda kúlugerðina. Gerið kúlur úr súkkulaðiblöndunni – á stærð við golfkúlu. Veltið varlega upp úr kryddblöndunni og setjið á hreinan disk. Geymst í kæli með lás til að tryggja öryggi.

Dásamlegt með kaffi eða rauðvínsglasi.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283