Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Hinrik Ólafsson bjargar dýrum í Taílandi

$
0
0

Hinrik Ólafsson er staddur í Taílandi með framleiðslufyrirtækinu Profilm sem eru að gera sex þátta sjónvarpsseríu um björgun og stöðu villtra dýra í Taílandi og víðar í Asíu. Þættirnir eru unnir í samstarfi við Skyvision í London og verða sýndir í um það bil 50 löndum. Hinrik hefur birt myndir af sér á Facebook umkringdur sjaldséðum dýrum og við, til að slá á forvitnina, slógum á þráðinn til hans og fengum að vita hvað hann er eiginlega að bardúsa.

11060179_10205339557021288_838558597228465701_o
Hvernig þættir verða þetta, Hinrik?

Við erum að fylgja eftir Edvin Viek sem er hollenskur ofurhugi og stofnandi WFFT-dýraverndunarsamtakanna sem hafa gert kraftaverk í að bjarga villtum dýrum úr hræðilegum aðstæðum hér í Taílandi. Edvin er kjölfestan í seríunni sem hefur fengið vinnuheitið Edvins Ark.

Hvernig ganga tökur?

Tökur eru stífar og oft við fáránlegar aðstæður. 39°C hiti í regnskógum og einn daginn vorum við að mynda dýragarð á þaki verslunarmiðstöðvar í Bangkok með górillu, simpönsum og órangútum með faldri myndavél. Einn tökustaðurinn var Búdda-klaustur pakkað af villtum dýrum í búrum sem almenningur hafði ánafnað musterinu en munkarnir því miður engan veginn færir að sjá um.

11041436_10205276212837723_5415998989851369288_n

Hvað verðurðu lengi í Taílandi og þessum hluta Asíu og með hverjum ertu?

Við erum búin að vera tvo mánuði við tökur á vegum Profilm, ég sé um framleiðslu og leikstjórn, Jóhann Sigfússon um kvikmyndatöku og leikstjórn, Ólafur Rögnvaldsson um kvikmyndatöku og Anna Dís Ólafsdóttir er yfir framleiðslu og handritum. Við komum heim 21. apríl.

11078172_10205363810187602_6914589709800640113_o

Segðu okkur aðeins hvaða veruleika þið eruð að fást við í þáttunum?

Taíland býr yfir breiðri flóru villtra dýra sem eiga mjög undir högg að sækja vegna skorts á landi. Landið hefur byggst hratt upp og það hefur komið niður á dýrunum t.d. eru 97% villtra fíla í Taílandi útdauðir á sl. 50 árum – svipaða sögu má segja um tígrisdýr, Asíu-björninn og gibbon-apa. Þegar þrengir að dýrum byrja menn að skjóta þau eða fanga. Margir halda villt dýr sem gæludýr meðan dýrin eru ungviði og í búddisma trúa margir að dýrin geymi sál skyldmenna sem dánir eru ef fólk hefur alið dýr heima við. En þegar dýrið verður óviðráðanlegt er því komið fyrir í Búdda-musteri því þar má ekkert deyða. En eins og ég sagði frá áðan hafa munkarnir ekki getu eða aðstöðu til að sinna dýrunum sem skyldi.

11130401_10205363823947946_3958867032681522049_o

 

Það er líka heilmikil ólögleg starfsemi í kringum villt dýr, ekki satt?

Jú, og því miður virðist Taíland vera miðstöð dýrasmygls með villt dýr og þá aðallega til Kína.
Kínverjar trúa því að villt dýr og dýrahlutar geymi ýmsa elexíra, t.d. að gallblaðra úr björnum auki kyngetu. Ríkir Kínverjar vilja tígrisdýr sem gæludýr eða gibbona. Þar eru villt dýr stöðutákn.
Hér er heimur sem er hulinn hinum vestræna og við munum afhjúpa sjokkerandi staðreyndir um verslun með villt dýr í Asíu sem mörg hver eru í bráðri útrýmingarhættu. WFFT-samtökin eru að vinna magnað starf sem og sjálfboðaliðar á þeirra vegum og það er óskandi að þessi þáttagerð okkar verði liður í því að vekja heiminn til umhugsunar um mikilvægi dýraverndunar villtra dýra.

18092_10205339552341171_8727672494485358761_n (1)


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283