Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Sítrónukladdkaka

$
0
0

Við fengum vini í mat um síðustu helgi og buðum upp á líbanskt meze-hlaðborð (meira um það seinna). Þar sem smáréttahlaðborðið tók frekar langan tíma í undirbúningi ákvað ég að hafa mjög fljótlegan eftirrétt og fann þá þessa girnilegu sítrónukladdköku á heimasíðu Hembakat. Eins og allar aðrar kladdkökur var hún svakalega fljótleg og aldrei þessu vant tókst mér að ofbaka hana ekki.

Það er skemmst frá því að segja að hún sló algerlega í gegn. Vinur okkar sagði þegar hann tók fyrsta bitann að þetta væri einhver besta kaka sem hann hafði smakkað (Svíar hafa að vísu oftast frekar einfaldan smekk á bakkelsi en það er önnur saga) og honum fannst bara eins og hann væri kominn aftur í eldhúsið til ömmu sinnar. Er hægt að fá fallegra hrós fyrir eldhússtörf? :D

Kakan var svo góð að ég bakaði hana aftur í gær og þá sagði maðurinn minn að þessi kaka væri komin efst á vinsældalistann hjá honum, hann er nefnilega afar hrifinn af sítrusávöxum og svona „ferskum“ kökum. Ég get því ekki annað en mælt með því að þið prófið :)

Sítrónukladdkaka


Sítrónukladdkaka
Ca 12 bitar

Hráefni
1 sítróna
150 g smjör
3 egg
3 dl sykur
2 tsk. vanillusykur
2,5 dl hveiti

Flórsykur til skrauts

Aðferð
Stillið ofninn á 175°c.

Þvoið sítrónuna (ekki verra að kaupa lífrænar sítrónur, sérstaklega þegar á að nota börkinn). Fínrífið börkinn af sítrónunni og pressið út 1–2 msk. af safanum.

Bræðið smjörið í potti. Takið pottinn af hitanum og blandið öllum hráefnunum út í, ásamt sítrónuberkinum og 1–2 msk. af safanum.

Smyrjið lausbotna form með smjöri og stráið jafnvel brauðmylsnu eða kókosmjöli í það. Hellið deiginu í formið. Bakið kökuna mitt í ofninum í 18–25 mínútur. Ég baka hana í nákvæmlega 20 mínútur og finnst kakan verða alveg fullkomin við það, aðeins bökuð í jöðrunum en klesst í miðjunni. Látið kökuna kólna alveg, stráið þá flórsykri á hana til skrauts og berið fram með þeyttum rjóma.

Gleymið ekki að heimsækja bloggið www.Eldhussystur.com


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283