Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Áhugaleysi er kryptonít á tröllin

$
0
0

Einu sinni voru börn hrædd með sögum af skessum og tröllkörlum. Nú vilja tröllin vernda börn – sérstaklega fyrir mönnum sem hafa unun af Júróvision.

Tröll voru kannski ekki til í gamla daga en þau eru til í dag. Þau eru t.d á Facebook og heita Gylfi, Margrét, Skúli og svipuðum óspennandi nöfnum.

Gylfi Ægisson er klárlega tröllkarl. Ævaforn og steinrunninn með skoðanir sem eru svo heimskulegar að þær sjást helst bara í innsendum greinum Morgunblaðsins. Hann eins og önnur tröll þarf að fá að borða.

Við unga fólkið segjum stundum, „Ekki fóðra tröllin“. Þau fitna bara og taka endalaust við. En eins og í húsdýragarðinum stelst góða fólkið til að fóðra þau samt. Telur að hægt sé að tala tröllin til með rökum. En tröll skilja ekki mannamál, þau skilja bara sitt mál. Það sem hentar þeim.

Sum tröll fæddust bara svona og geta ekkert að því gert þótt þau séu ógeðsleg og fráhrindandi. Þau skilja ekki lífið, samskipti og mannréttindi og finnst aðeins þeir sem koma frá sama fjalli og þau eiga skilið einhverja sanngirni. Önnur tröll eru viljandi að espa aðra upp, koma af stað rifrildum og reyna að græða á því. Peninga og vinsældir eins og jólasveinarnir á Útvarpi Sögu, eða skemmtun eins og 15 ára bólugrafni krakkaskíturinn á internetinu.

Margar aðferðir hafa verið reyndar til að fá tröllin til að reyna allavega að þykjast vera manneskjur. Það hefur verið rifist við þau, höfðað til samvisku þeirra eða reynt að fá þau til að lesa Nýja testamentið sitt betur en þau espast bara upp. Eina sem hefur virkað er að koma fram við þau eins og sölumann á göngum Kringlunnar. Strunsa einfaldlega fram hjá, þykjast ekki sjá viðkomandi. Segja í mesta lagi: „Ég hef ekki áhuga.“

Áhugaleysi virkar eins og kryptonít á tröllin. Hvort sem um ræðir þá gerð sem hegðar sér svona viljandi eða er bara grjótheimskt. Áhugaleysið sveltir þau, egóið þeirra minnkar og þau ná jafnvel að lifa eðlilegu lífi ef þau eru hunsuð nægilega.

Skessunum sem virkilega trúa því að samkynhneigð sé smitandi, múslimar allir hryðjuverkamenn eða Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkurinn séu þeir einu sem hægt er að treysta til að stjórna landinu verður ekki haggað. Það eru engar samræður þarna sem þurfa að eiga sér stað. Vitleysingar eru bara vitleysingar og við þurfum að læra að hunsa þá.

Í Bandaríkjunum eru flestir vísindamenn hættir að taka þátt í kappræðum og rökræðum við sköpunarsinna. Þeir sáu að það skilaði engu. Ef eitthvað er þá gaf það sköpunarsinnunum eitthvert vægi í umræðunni. Þróun og sköpun litu út eins og tvær jafn líklegar og réttháar kenningar í augum sumra trúaðra þó að vísindamennirnir litu svo á að þeir væru að reyna fræða einhver kjánaprik um augljósar staðreyndir.

Einnig þýðir ekkert að ræða við Gylfa, fólkið á Útvarpi Sögu eða rasista eins og venjulegt fólk. Það er eins og að tala við stein. Það er þó bæði sjálfsagt og skemmtilegt að gera grín að skoðununum. Nýta þetta málfrelsi sem tröllin skýla sér oft á bak við.

Leiðinlegt samt með Gylfa greyið. Mér fannst hann alltaf svo flottur og lögin hans sum í uppáhaldi. Enginn maður hefur komið eins aftan að mér og hann með þessari homma herför sinni.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283