Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Sjal fyrir sumarið

$
0
0

Maður á aldrei of mörg sjöl. Það er gott að eiga nokkur í mismunandi litum og úr mismunandi garni til að nota á öllum árstímum. Á veturna vefjum við þeim um hálsinn og notum eins og trefil en á sumrin geta þau komið í stað peysu yfir kjól.

Ég fer aldrei í leikhús eða á tónleika án sjals því það er erfitt að vita fyrirfram hvort það verður hlýtt eða svalt í salnum. Svo er mjög gaman að prjóna sjöl og það getur raunar orðið ávanabindandi. Svo eru sjöl flottar tækifærisgjafir.

Þetta sjal er sérstakt vegna þess að útaukningin er gerð til hliðanna með því að fitja upp nýjar lykkjur eftir hvern mynsturkafla. Kanturinn lítur því út eins og tröppur en þegar sjalið er strekkt í lokin má toga endana út af vild og eftir smekk.

Garnið er geitaull með smá merínóull saman við. Fallegur gljái sem getir sjalið örlítið sparilegt fyrir vikið. Hér finnurðu uppskriftina: LAUF sjal frá Canard

Gleðilegt sumar!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283