Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Styrkir hönnunarsjóðs

$
0
0

Opið er fyrir umsóknir um styrki hönnunarsjóðs, þetta er önnur úthlutun á árinu en umsóknarfrestur rennur út á þriðjudaginn í næstu viku, þann 28. apríl! Veittir verða styrkir í fjórum flokkum:

Þróunar- og rannsóknarstyrkir

Er ætlað að styrkja rannsóknir og þróun nýrra hugmynda eða lausna. Þróunar- og rannsóknarstyrkir geta að hámarki numið 2 milljónum króna. Verkefni sem hlotið hefur þróunar- og rannsóknarstyrk á möguleika á að fá verkefnastyrk síðar.

Verkefnastyrkir

Er ætlað að styrkja nýjar hugmyndir eða lausnir sem búið er að þróa og móta og eru komin á útfærslu- og framkvæmdastig. Verkefnastyrkir geta að hámarki numið 5 milljónum króna. Verkefni sem hlotið hefur verkefnastyrk á möguleika á að fá markaðs- og kynningarstyrk síðar.

Markaðs- og kynningarstyrkir

Er ætlað að styrkja verkefni sem komin eru af útfærslu- og framkvæmdastigi og eru fullmótuð og tilbúin til markaðssetningar. Markaðs- og kynningarstyrkir geta að hámarki numið 2 milljónum króna.

Ferðastyrkir

Er ætlað að auka möguleika hönnuða og arkitekta á því að taka þátt í erlendum samstarfs- og kynningarverkefnum, sýningum, viðburðum, ráðstefnum eða viðskiptastefnumótum. Hægt er að sækja um ferðastyrk fyrir einn einstakling eða fleiri til sömu ferðar. Veittir verða allt að 30 ferðastyrkir að upphæð 100 þúsund hver.

Við mat á umsóknum er litið til gæða og stöðu hugmyndar eða verkefnis, faglegs bakgrunns umsækjanda, fjárhagsgrundvallar verkefnis ásamt gildi og mikilvægi þess til eflingar íslenskrar hönnunar og arkitektúrs.

Umsóknum skal skilað rafrænt í sérstöku umsóknarformi sem hægt er að nálgast á vefsíðu sjóðsins, https://sjodur.honnunarmidstod.is/ eða smella á hlekk til að sæækja um.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283