Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Hvað á að drekka með grillmatnum?

$
0
0

Það verður nú seint miðjarðarloftsslag á Íslandi en síðustu daga hefur maður fyllst von um að nú sé sumarið að koma og brátt geti maður setið úti og grillað í faðmi vina og fjölskyldu. Í dag ætlum við að fjalla um frábær vín sem henta með grillmatnum og bjóða upp á sannkallaða sumarstemningu en sökkvum okkur fyrst í smá fróðleik um vínhéruðin og framleiðendurna sem um ræðir.

barbecue-and-wine

Rónarvínin góðu.

Í Suður-Frakklandi er hið þekkta vínsvæði Rhone og liggur í Rónárdalnum. Svæðinu er venjulega skipt í tvennt þ.e. Norður- og Suður-Rhone. Veðráttan getur verið ansi misjöfn á þessum 2 svæðum og í norðurhlutanum getur golan verið köld og veturnir harðir. Þarna ræður syrah þrúgan ríkjum í rauðvínum. Í hvítvínum eru þrúgurnar viognier, marsanne og rousanne mest notaðar.

Þarna eru þekkt vínsvæði eins og Cote-Rotie AOC, Crozes-Hermitage AOC o.fl. Í suðurhlutanum hins vegar er mun mildara veðurfar, veturnir ekki eins kaldir og sumrin geta verið ansi heit. Sannkallað miðjarðarhafsloftslag.

Í suðurhluta Rónarsvæðisins eru mörg afar þekkt og vel metin vínsvæði og ber hæst Chateaneuf-de-Pape en þar eru búin til mörg frábær og vel þekkt vín. Þarna eru líka svæði eins og Cotes de Rhone og Cotes de Rhone Villages sem eru Íslendingum vel kunnug. Châteauneuf nær yfir eina 3.200 hektara og ársframleiðslan nemur 100 þúsund hektólítrum að meðaltali.

Leyfilegt er að nota þrettán þrúgutegundir þótt fæstir noti þær allar. Helstu tegundirnar í dag eru Grenache, Cinsault, Mourvédre, Syrah, Muscardin, Counoise, Clairette og Bourboulenc. Grenache er yfirleitt stærstur hluti blöndunnar, á bilinu 40–60%, en sú þrúga gefur mýkt og fágun. Ef vínviðurinn er gamall og uppskerumagnið lítið gefur Grenache af sér stórfengleg vín við réttar aðstæður eins og þær eru í Châteauneuf þótt yfirleitt sé hún þekktari fyrir að vera uppistaða einfaldra neysluvína á borð við Côtes-de-Rhône.

Hver framleiðandi hefur sinn stíl, sína blöndu, og þrúgufjöldinn gerir að verkum að menn hafa mikið svigrúm til að þróa persónulegan stíl. Það er því vart hægt að tala um dæmigerð Châteauneuf-vín. Almennt má þó segja að þau séu dökk og áfeng með flókna ilmkörfu, mjúkan ávöxt, leður og lakkrís og þurfi að minnsta kosti fimm ára geymslu.

Þannig eru vín Perrin-fjölskyldunnar, sem á Château Beaucastel, eitt af virtustu vínhúsum Châteauneuf, vín þar sem Mourvédre gegnir ekki minna hlutverki en Grenache. Við ætlum hér að fjalla um 2 vín frá þessum frábæra framleiðanda sem ekki eingöngu eru afar vel gerð heldur líka á afar viðráðanlegu verði.

perrin familie (1)

Perrin Cotes de Rhone Villages kr. 2.564
perrinccotes de rhone

Eins og áður sagði er Perrin-fjölskyldan þekktust fyrir Chateauneuf-vínið Beaucastel. Ódýrari vínin þeirra Perrin-bræðra standa hins vegar vel fyrir sínu.
Einungis brot þeirra vína, sem eru framleidd í Cotes-du-Rhone fá að nota skilgreininguna Villages, en til þeirra eru gerðar strangar kröfur. Perrin Cotes-du-Rhone Villages er í betra lagi, vínið er dökkt, angan krydduð, áberandi lyng og krækiber. Það er enn töluvert lokað, hefur gott af því að standa opið í smástund. Myndi ekki versna við 2–3 ára geymslu.
Frábært vín með grillinu í sumar!

La Vielle Ferme kr. 2.026
La_vieille_ferme_2

Ventoux er eitt af vínhéruðunum í suðurhluta Rhone-dalsins í Frakklandi. Þarna erum við komin í miðjarðarhafsloftslag og vínin taka mið af því. La Vieille Ferme sem mætti þýða sem „gamli bærinn“ er vín sem Perrin-fjölskyldan hefur framleitt á þessum slóðum um áratugaskeið og má segja að sé orðið eitt af klassísku ódýru vínum þessa svæðis. Þetta er einfalt vín en afskaplega aðlaðandi, hefur þennan suður-franska sjarma sem einkennir góð vín frá þessum slóðum, örlítið kryddað og fullt af sól, gott með mat. La Vielle Ferme er annað söluhæsta rauðvínið frá Rhone á Íslandi og því nokkuð ljóst að Íslendingum líkar vel við það.
Dökkrautt á lit, sólber, þroskuð kirsuber, lyng og svolítið piprað. Bjart og létt með mjúkum, krydduðum ávexti í munni. Má drekka örlítið kælt, rétt undir 18 gráðum.
Verður ekki öllu sumarlegra.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283